Háskólabíó
25. september, kl 20:30
Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá stofnun hins goðsagnakennda framleiðslufyrirtækis Propaganda Films býður RIFF til einstakrar tvennusýningar á tveimur tímamótaverkum David Lynch: hinum 94 mínútna langa upphafsþætti Twin Peaks og Gullpálmaverðlaunamyndinni Wild at Heart.
Verkin komu út með aðeins fárra vikna millibili vorið 1990 og mörkuðu tímamót í kvikmynda- og sjónvarpssögunni. Twin Peaks umbylti sjónvarpsmiðlinum og vakti spurninguna sem hélt milljónum áhorfenda hugföngnum: Hver myrti Lauru Palmer? Wild at Heart er óviðjafnanleg blanda vegamyndar, ástarsögu, suðurríkjagotneskunnar og biksvarts húmors, borin uppi af einstakri sýn Lynch.
Wild at Heart verður sýnd í glæsilegri nýrri 4K-endurvinnslu, unninni úr upprunalegu 35 mm filmunum undir handleiðslu kvikmyndatökustjórans Frederick Elmes og með samþykki David Lynch Family Trust.
Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson verður viðstaddur sýninguna og gefst gestum því einstakt tækifæri til að upplifa þessi áhrifamiklu verk í návígi við einn af lykilmönnum þeirra.
Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða og takmarkað magn miða er í boði.
4 900 kr.
Til á lager




Til að bjóða upp á bestu upplifun notum við tækni eins og vafrakökur til að geyma og/eða aðgangast tækjaupplýsingum. Að samþykkja þessa tækni gerir okkur kleift að vinna með gögn eins og vafrahegðun eða einstök auðkenni á þessari síðu. Að samþykkja ekki eða afturkalla samþykki getur haft slæm áhrif á ákveðna eiginleika og virkni.