Search
Close this search box.

LEITA

Search
Close this search box.

Sigurvegarar RIFF 2024

RIFF TILKYNNIR VERÐLAUNAHAFA OG FAGNAR METAÐSÓKN 

 

Japanska myndin Super Happy Forever (Eilíf hamingja) hlýtur Gullna lundann, norska heimildarmyndin A New Kind of Wilderness (Breyttur veruleiki) vann verðlaun í flokki Annarar framtíðar, Brúðurin eftir Hjördísi Jóhannsdóttur var valin besta íslenska stuttmyndin og dómnefnd unga fólksins valdi G-21 Sena frá Gottsunda sem bestu myndina

 

Tilkynnt var um verðlaunahafa RIFF – Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík –  við hátíðlega athöfn í Háskólabíói í dag.  Lokamynd hátíðarinnar er The Room Next Door (Herbergið við hliðina) eftir Pedró Almodóvar, með Tildu Swinton og Julianne Moore í aðalhlutverkum, og var hún sýnd fyrir fullum sal gesta. Hátíðinni lýkur síðan í tuttugusta og fyrsta sinn annað kvöld í Háskólabíói og gefst gestum kostur á að sjá verðlaunamyndirnar á morgun, sunnudag, síðasta degi hátíðarinnar. 

Brúðurin eftir Hjördísi Jóhannsdóttur var verðlaunuð sem besta íslenska stuttmyndin í ár, og Nikulás Tumi Hlynsson fékk þar að auki sérstaka viðurkenningu fyrir sína stutmynd, Blái Kallinn.

Dómnefnd unga fólksins verðlaunaði sænsku myndina G – 21 Sena frá Gottsunda eftir Loran Batti sem bestu myndina. 

Gullni lundinn, aðalverðlaun RIFF, féll í skaut kvikmyndarinnar Super Happy Forever (Eilíf hamingja) eftir japanska leikstjórann Kohei Igarashi. Myndin fjallar um Sano sem ferðast með æskuvini sínum Miyata til strandbæjarins Izu, í leit að týndum rauðum hatti. Þar sem Sano hafði fimm árum fyrr kynnst og fallið fyrir eiginkonu sinni heitinni. Í flokknum Vitranir kepptu 8 myndir eftir leikstjóra sem eru að gera sína fyrsta eða aðra mynd. Myndin var opnunarmynd í Feneyjum nú fyrr í mánuðinum og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Þá fékk myndin A New Kind of Wilderness (Breyttur veruleiki) frá Noregi eftir Silje Evensmo Jacobsen verðlaun í flokknum Önnur framtíð þar sem sýndar eru myndir sem fjalla um aðkallandi málefni líðandi stundar. Myndin vann einnig World Cinema Grand Jury Prize á Sundance hátíðinni fyrr á árinu.

Metaðsókn hefur verið á RIFF í ár og eru aðstandendur afar þakklátir áhorfendum, kvikmyndagerðarmönnum og samstarfsaðilum fyrir stuðninginn.

Úrslit hátíðarinnar voru eftirfarandi: 

GULLNA EGGIÐ

Dómnefnd: Bjarni Felix Bjarnason, Hrafnkell Stefánsson og Silla Berg

Sigurvegari Talent Lab smiðjunnar og handhafi Gullna eggsins er: A Good Day Will Come (Góðir dagar) eftir Amir Zargara. 

Umsögn dómnefndar:

A Good Day Will Come er áleitin spegill á heiminn okkar í dag og grandskoðar muninn á því að láta í sér heyra og því að þegja í von um öryggi. Spurningin sem myndin leggur í hendur áhorfenda er: getum við brotist undan kynslóðamynstrum áður en þau mynstur brjóta okkur á bak aftur? Haganlega smíðuð frásögnin, útsjónarsamar ákvarðanir og fagmannlegt handverk koma saman til að skapa sannfærandi og trúverðugan söguheim.  

ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR

Dómnefnd: Sarah Gyllenstierna, Bergur Árnason, Katla Njálsdóttir 

Verðlaun fyrir bestu íslenska stuttmyndin hlýtur Hjördís Jóhannsdóttir fyrir mynd sína Brúðurin.

Umsögn dómnefndar: 

Stuttmyndin Brúðurin er heildstætt verk sem hreyfði sérstaklega við dómnefndinni, ekki síst vegna frammistöðu leikarana, og má þar sérstaklega nefna aðalleikkonuna. Leikstjóranum tekst með eindæmum að skapa sannfærandi og þrívíðan heim, með sterkri sögufléttu og tilfinningadýpt sem er sérstaklega tilkomumikil í svo stuttri mynd.

Sérstaka viðurkenningu í flokknum Íslenskar stuttmyndir hlýtur Nikulás Tumi Hlynsson fyrir mynd sína Blái Kallinn. En dómnefndin sammældist um að: ,,Hér [væri] kominn kvikmyndagerðarmaður sem má vænta mikils af. Með sérstakri gaumgæfni og tærri sýn hélt hann dómnefndinni á tánum gjörvalla myndina.” 

Verðlaun fyrir bestu stuttmynd í nemendaflokki hlýtur Alfreð Hrafn Magnússon fyrir mynd sína Svefngengill.

Umsögn dómnefndar: 

Örugg tök þessa frumlega leikstjóra á bæði tóni og myndmáli þótti dómnefndinni tilkomumikil. Tvíræðni og tilraunakennd nálgun myndarinnar er vellukkuð og heldur áhorfendum við efnið frá upphafi til enda.

Sérstaka viðurkenningu í nemendaflokki hlýtur Salvör Bergmann fyrir mynd sína Leik lokið.

Þessi sérstaklega efnilegi leikstjóri sýnir fram á sterka myndræna sýn og næmt skyn fyrir blæbrigðum, bæði í myndinni Leik lokið, sem og öðrum verkum leikstjórans á hátíðinni, sem heillaði dómnefndina. 

ALÞJÓÐLEGAR STUTTMYNDIR 

Dómnefnd: Lasse Linder, Loran Batti, Erlingur Óttar Thoroddsen

Verðlaun fyrir bestu alþjóðlegu stuttmynd hljóta Caroline Poggi og Jonathan Vinel fyrir mynd sína The Exploding Girl (Springandi stelpan). 

Umsögn dómnefndar: 

SPRINGANDI STELPAN fangar óreiðukenndan kjarna heimsins í dag, þar sem reiði og óréttlæti liggja eins og mara yfir lífi okkar. Áhorfandinn er lostinn viðstöðulausum höggum og sprengingum, sem neyðir hann til að horfast í augu við yfirþyrmandi hrylling samtímans. Með djarfri fagurfræði Z-kynslóðarinnar, sýnir myndin á fiman hátt fram á mýktina sem leynist innan í óreiðunni; þegar heimurinn er svona hryllilegur, þá hlýtur þú að springa.

DÓMNEFND UNGA FÓLKSINS

Dómnefnd: Harpa Hjartardóttir, Artúr Siuzev Guðnason, Arína Vala Þórðardóttir

Dómnefnd unga fólskins veitir sænsku myndinni G – 21 Scenes from Gottsunda (G-21 sena frá Gottsunda) eftir Loran Batti verðlaun. 

Umsögn dómnefndar

Dómnefndin var þess heiðurs aðnjótandi að horfa á breitt úrval kvikmynda frá öllum heimshornum, sem hver hafði sína styrkleika og einstöku rödd. Að lokum komst dómnefndin að samróma niðurstöðu um að ein tilnefndu myndanna stæði upp úr í sinni óhefluðu en þó umfram annað mannlegu túlkun á samfélagi sem er hulið mörgum. G – 21 sena frá Gottsunda er innhverf og ljóðræn hugleiðing um sjálfsmynd og bræðralag, þar sem tryggð leikstjórans við rætur sínar birtist í einstöku portretti af hverfinu sem ól hann upp, og fyrir það á hann mikið lof skilið. 

ÖNNUR FRAMTÍÐ

Dómnefnd: Andri Snær Magnason, Tine Klint, Rakel Garðarsdóttir 

Verðlaunin hlýtur norska heimildarmyndin A New Kind of Wilderness (Breyttur veruleiki) eftir Silje Evensmo Jacobsen.

Umsögn dómnefndar: 

Áhrifamikil heimildarmynd um fjölskyldu sem þarf að takast á við blákaldan veruleika þegar framtíðin reynist önnur en hún átti að vænta. Leikstjóri miðlar erindi myndarinnar af fegurð og andagift.

VITRANIR – GULLNI LUNDINN

Dómnefnd: Ava Cahen, Elad Samorzik, Ingvar E. Sigurðsson

Sigurvegari: Super Happy Forever (Eilíf hamingja) eftir Kohei Igarashi. 

Umsögn dómnefndar: 

Gullna Lundann hlýtur næm og ljóslifandi mynd sem tekst á frumlegan hátt á við sorg, og teflir fram persónum sem er var sönn ánægja að kynnast. Kvikmyndin dáleiddi okkur á ýmsum plönum, frásögnin sem leikur sér að tímanleika, fínstillt sögusviðið.

Sérstök viðurkenning: Helga Guren úr kvikmyndinni Loveable (Elskuleg) eftir Lilju Ingólfsdóttur. 

Dómnefndinni þykir full ástæða til að veita sérstaka viðurkenningu til leikkonu úr flokknum Vitranir, en frammistaða hennar hreyfði sérstaklega við dómnefndinni. Hún túlkar fullkomlega hlutverk konu sem tvístrast úr ástarsorg, og lærir svo að komast í samband við sjálfa sig. Við óskum Helga Guren til hamingju með hlutverk sitt í Elskuleg.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email