… málþing sem enginn missir af …
… hvað gerir gervigreindin?…
… meistaraspjall um búninga- og gervahönnun …
Ekki missa af Bransadögum á RIFF 2.–6. október. Áhugaverð og skemmtileg málþing eru á dagskrá í ár, þar á meðal:
Eitt heitasta umræðuefnið dagsins í dag: gervigreind og áhrif hennar á þróun kvikmyndageirans. Ásgrímur Sverrisson, ritstjóri Klapptrés, stýrir umræðunni og fær til sín fagfólk úr kvikmynda- og tæknigeiranum.
Reynsluboltarnir Margrét Einarsdóttir og Ásta Hafþórsdóttir halda meistaraspjall um búninga- og gervahönnun og efna til umræðu um þennan grundvallarþátt kvikmyndagerðar.
Þetta og miklu meira á bransadögum RIFF.
Taktu þátt í samtalinu þar sem bransinn kemur saman.
Öll dagskráin verður auglýst á allra næstu dögum. Sjáumst á RIFF!