Barnadagskrá RIFF
Barnadagskrá RIFF býður börnum upp á öðruvísi kvikmyndir en þeim bjóðast yfirleitt í kvikmyndahúsum landsins. Kvikmyndirnar snerta á samfélagslegum málum og skapast vitsmunalegar umræður milli barna að sýningum loknum. Þannig geta börnin reynt að komast að lausn tiltekinna mála sem auðgar samfélagslega vitund þeirra.
Barnadagskrá RIFF er skemmtileg og fræðandi upplifun þar sem dagskráin er sett þannig upp að börnin fá sérstakt námsefni um kvikmyndalæsi. Kennarar fá á einnig sérstakt kennsluefni sem er útbúið fyrir hvern flokk og nýtist í kennslu. Það fer síðan eftir umfjöllunarefninu hvernig verkefnin eru útfærð en almennt byggir námsefnið á hópavinnu, umræðum, íhugun, gagnrýni hugsun og spurningum.
Kennum börnum kvikmyndalæsi og gagnrýna hugsun Kynnum fyrir þeim mismunandi hliðar heimsins í gegnum linsu hreyfimynda Vekjum upp áhuga þeirra á samfélagslegum málum.
Okkar markmið með Barnadagskrá RIFF er að færa kvikmyndakennslu inn í íslenska grunnskóla og þar með efla gagnrýna hugsun og víðsýni nemenda og síðast en ekki síst gefa kennurum ný tækifæri og tól í kennslu.
Barnadagskrá RIFF 2020
Barnadagskrá RIFF 2020 var haldin í samstarfi við List fyrir alla þar sem boðið var upp á glæsilega dagskrá sem samanstóð af evrópskum stuttmyndum. Myndirnar voru sýndar í Norrænahúsinu yfir hátíðina og komust færri leikskólar og grunnskólar að sem vildu þar en einnig fór Bíóbíll RIFF hringinn í kringum landið sem sýndi dagskránna fyrir leik- og grunnskóla á landsbyggðinni. Á kvöldin var svo haldið Bílabíó sem sló rækilega í gegn.