RIFF, Alþjóðleg Kvikmyndahátíð í Reykjavík, tekur þátt í samstarfsverkefni sjö evrópskra kvikmyndahátíða sem deila með sér þekkingu á ólíkum sviðum.
Markmiðið með samstarfinu er að hátíðirnar njóti stuðnings hvor af annarri og deili með sér þekkingu og reynslu á sama tíma og þær kynna evrópska kvikmyndagerð og vinna að þróun áhorfendahópsins. Samstarfsnetið er samsett af New Horizons kvikmyndahátíðinni pólsku , IndieLisboa hátíðinni í Portúgal, Kvikmyndahátíð Þessaloníku, Kvikmyndahátíð Transilvaníu, spænsku hátíðinni FILMADRID og kvikmyndahátíðinni í Vilníus, auk RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
“Samstarf þessara hátíða er ekki síst tilkomið vegna þess að þær deila sömu markmiðum og stefnu og hafa mjög áþekka framtíðarsýn”, að sögn Marcin Pieńkowski, listræns stjórnanda New Horizons.
Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, segir samstarfið hafa verið með óformlegum hætti í gegnum árin en Smart7 sé faglegur vettvangur sem geri hátíðunum kleyft að nýta til hins ítrasta þá sérþekkingu sem stjórnendur og starfsfólk hátíðanna hafa byggt upp í gegnum árin.
Vinnustofur um fagvæðingu, áhorfendaþróun, kynningarmál, sölu og fjármögnun auk sjálfbærni og grænna viðmiða hafa verið skipulagðar næstu tvö árin sem standa framleiðendum og starfsfólki hátíðanna til boða. Smart7 samstarfsnet kvikmyndahátíða í Evrópu er styrkt af Creative Europe MEDIA sjóðnum og Samtökum evrópskra kvikmyndahátíða.