Hleð Viðburðir

Benny Safdie: The Smashing Machine (2025) + Intro Q&A

Þessi atburður hefur staðist.

Benny Safdie er einn afkastamesti og djarfasti leikstjóri Bandaríkjanna um þessar mundir. Hann er sérstaklega þekktur fyrir kvikmyndir sem hann og bróðir hans unnu að í sameiningu, þar sem Safdie bæði leikstýrir og leikur á móti risastórum nöfnum í Hollywood, líkt og Adam Sandler (Uncut Gems, 2019) og Robert Pattinson (Good Time, 2017). Nú vinnur Safdie sjálfstætt og fer sigurför um heiminn með nýjustu mynd sína The Smashing Machine með Dwayne Johnson í aðalhlutverki. Myndin verður sýnd á RIFF með sérstakri rafrænni kynningu frá Benny Safdie í rauntíma.

Í The Smashing Machine er sögð sagan af fjölbragðaglímukappanum Mark Kerr, sem faldi flóknar tilfinningar með hrikalegum fantabrögðum sínum í hringnum. Úr verður áhugaverð svipmynd þar sem ógurlegur styrkur felur brothætta sál.

Sýningin byrjar eftir stutta kynningu frá Benny Safdie kl 19:15.

október 1 @ 19:15 - 22:00

Háskólabíó – Screening Room 1

Hagatorgi
Reykjavík, 101 Iceland