RIFF kynnir á nýjan leik fjölskyldubíó djúpt í iðrum jarðar. Hetjudáðir Múmínpabba – Ævintýri ungs Múmínálfs (The Exploits of Moominpappa — Adventures of a Young Moomin) er hreyfimynd frá 2021 eftir Ira Carpelan sem segir frá því þegar Múmínsnáðinn er rúmfastur vegna geitungabits og Múmínpabbi vill gleðja hann. Hann grípur til þess ráðs að segja honum sögur frá ævintýralegri æsku sinni og einni stormasamri og örlagaríkri nótt þegar hann bjargar Múmínmömmu úr sjónum.
Raufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu.
Myndin er með íslensku tali. Börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna.


