Þegar hópur vinkvenna leggur leið sína í ókannaðan helli breytist spennandi leiðangur fljótt í innilokunarkenndan hrylling. Fastar neðanjarðar uppgötva þær að þær eru ekki einar… Þessi sígilda hryllingsmynd Neil Marshall verður enn meira skelfileg þegar hún er sýnd djúpt í hellum Lava Tunnel.
Raufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu.
Vinsamlegast athugið að myndin er ekki við hæfi barna.


