Ekki láta þig vanta í rómantískasta Sundbíó RIFF frá upphafi, 5. febrúar!
Sundbíóið er einstök upplifun sem er hönnuð í kringum hina klassísku gamanmynd When Harry Met Sally (1989). Hér er ekki bara einstakt tækifæri til að sjá myndina á hvíta tjaldinu og það í Sundhöll Hafnarfjarðar heldur munu leikarar bregða sér á leik í hlutverkum persónanna og lifandi djasstónlist í anda myndarinnar mun óma um sundhöllina.
Líkt og undanfarið ár verður mikið lagt í upplifunina og gestir mega búast við óvæntum uppákomum. Takmarkaður miðafjöldi í boði svo tryggið ykkur miða sem fyrst. Hús opnar 18.00 en myndin hefst kl. 19.00.
Sjáumst í Sundbíó RIFF!


