Hleð Viðburðir

Stuttmyndadagar RIFF

ágúst 15 @ 16:00 - ágúst 16 @ 23:00

Hitum upp fyrir hátíðina með stuttmyndum frá Evrópu. Sérstakar sýningar fara fram í Tónabíói og Laugardalslaug. 

 

MÍNÚTUMYNDIR Í SUNDI
RIFF sýnir mínútumyndir víðsvegar frá í Evrópu, í samstarfi við One Minutes samtökin. Sýningin fer fram á óvenjulegum máta, en myndirnar munu rúlla uppi á skjá innilaugarinnar í Laugardalslaug. Tvær seríur verða sýndar: Deep Blue, sem er sett saman af íslenska listamanninum Arnari Ásgeirssyni, og Akwatik, sem var sett saman fyrir stuttmyndahátíðina Kinemastik í Möltu.

 

PORTÚGALSKUR FÓKUS
Portúgal er kvikmyndalandið í brennidepli á hátíðinni í ár og sýnum við því frábært úrval portúgalskra stuttmynda.

 

SUMAR Í EVRÓPU
Það er sumar í Evrópu. Í prógrammi eftir Aleksöndra Lawska kanna kvikmyndagerðarmenn innri þrár, mannleg tengsl og viðkvæm mörk milli þess leynda og opinbera. Allt frá ástarævintýrum í sumarhitanum og fölnandi sumardraumum, til nándar á internetinu, leyndarmála og orðróma sem breiðast hratt út. Myndirnar blanda saman raunsæi og súrrealisma og sýna hvernig fólk leitar eftir nánd í sítengndum en jafnframt einangrandi heimi.