Hleð Viðburðir

Apichatpong Weerasethakul: Memoria (2021) + Meistaraspjall

Þessi atburður hefur staðist.

Apichatpong Weerasethakul, sem heiðraður verður á RIFF í ár fyrir einstaka listræna sýn, er meðal frumlegustu og róttækustu kvikmyndagerðarmanna samtímans. 

Hann fæddist í Bangkok árið 1970 og ólst upp í norðausturhluta Taílands. Hann lærði arkitektúr áður en hann hélt til Chicago í kvikmyndanám, þar sem hann þróaði sinn einstaka stíl sem snýst um minni, tilfinningu og andlega leit frekar en hefðbundinn, línulegan söguþráð. Draumkennt töfraraunsæi er alltumlykjandi. Myndir hans eru þekktar fyrir hæga, íhugula framvindu og draumkennda færslu milli veruleika og hugarheims. Blissfully Yours (2002) og Tropical Malady (2004) vöktu strax athygli, en það var Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives (2010) sem vann til Gullpálmans í Cannes og gerði hann heimsþekktan.

Þó myndir Apichatpong—sem er af aðdáendum jafnan kallaður Joe—megi virðast ópólitískar við fyrstu sýn, endurspegla þær oft undirliggjandi átök: ritskoðun, félagslegt taumhald og bælda sögu Taílands. Hann miðlar fremur með stemningu en yfirlýsingum — kvikmyndir hans líkjast oft óljósum draumum.

Í Memoria (2021) ráfar Tilda Swinton um götur Bogotá á flótta undan hljóði sem enginn nema hún heyrir. Úr verður framandi, fögur og draumkennd upplifun þar sem minningar og ímyndun mætast. Hér er á ferðinni hæglát og seiðandi ráðgáta sem gerist á mörkum tveggja heima.

Sýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 20 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 19:40.

september 30 @ 17:00 - 20:30

Háskólabíó – Screening Room 1

Hagatorgi
Reykjavík, 101 Iceland