Hleð Viðburðir

Smakkbíó: Tampopo (Að eilífu, Ramen)

Þessi atburður hefur staðist.

RIFF sýnir japönsku gamanmyndina Tampopo (Að eilífu, Ramen) í samstarfi við ástsælasta Ramen stað borgarinnar, Ramen Momo. Komdu og leyfðu öllum skilningarvitunum að upplifa töfra japanskrar matarmenningar.

Tampopo er mannbætandi óður til gleðinnar sem góður matur veitir. Tveir vörubílstjórar slysast inn á hrörlega vegasjoppu þar sem ekkjan Tampopo selur ramen núðlur.  Hún biður þá félaga í framhaldinu að hjálpa sér að gera sjoppuna að núðlusjoppu í fremstu röð. Dásamleg mynd sem bragð er af.

Innifalið í verðinu er smökkun sem innblásin er af Tampopo, þar á meðal ramen og snarl, ásamt miða á Tampopo-sýninguna. Einnig verður hægt að kaupa sætar japanskar kræsingar.

Ramen Momo er fyrsti ramen-veitingastaðurinn í Reykjavík sem býður upp á handgerðar núðlur og deiglur (e.dumplings) í notalegu og hlýlegu andrúmslofti. Staðurinn var stofnaður árið 2014 og er þekktur fyrir bragðmiklar súpur, vegan- og glútenlausa valkosti  og notkun á ferskum, staðbundnum hráefnum. Frá 2024 hefur veitingastaðurinn starfrækt tvo staði – þann upprunalega við Tryggvagötu og nýja útibúið við Bankastræti – þar sem boðið er upp á ekta kósýmatar-upplifun.

september 28 @ 17:30 - 21:00

Háskólabíó – Screening Room 4

Hagatorgi
Reykjavík, 107