Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

Kvikmyndaleikstjórarnir Joachim Trier frá Noregi og Mia Hansen – Löve frá Frakklandi hljóta heiðursverðlaun RIFF í ár fyrir framúrskarandi listræna sýn. Verðlaunin verða afhent af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á setningardegi RIFF þann 30 september nk en sama dag verða þau með meistaraspjall í Gamlabíói við kvikmyndaleikstjórana Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Hafstein Gunnar Sigurðsson sem er öllum opið.

Það er óhætt að fullyrða að Joachim og Mia séu með áhugaverðustu og eftirsóttustu ungu leikstjórum samtímans og því er það mikill heiður að þau hafi þekkst boðið um að koma á RIFF. Þau voru bæði með nýjar myndir í Cannes í sumar sem fengu afbragðs dóma  og verða þær sýndar á RIFF ásamt eldri myndum þeirra. Mynd Joachims Versta manneskja í heimi hlaut verðlaun í Cannes fyrir besta kvenleik. Bergman Eyja eftir Miu hlaut mikla athygli og lof gagnrýnanda í Cannes í sumar.

Versta manneskja í heimi ( Worst person in the World) eftir Joachim Trier  er  er opnunarmynd RIFF. Borgarstjóri  Dagur B. Eggertsson mun setja hátíðina við hátíðlega athöfn  í Gamlabíói þann 30. sept. næstkomandi.

image

Joachim Trier

Joachim þykir einn áhugaverðasti leikstjóri á Norðurlöndunum um þessar mundir og er sagður hafa mótandi áhrif þegar kemur að nútíma kvikmyndagerð þrátt fyrir ungan aldur. Hann steig sín fyrstu skref bak við myndavélina við gerð hjólabrettamyndbanda sem unglingur. Síðar stundaði hann kvikmyndagerðarnám í Danmörku og Bretlandi þar sem stuttmyndir hans vöktu strax mikla athygli. 

Fyrstu tvær kvikmyndir hans í fullri lengd, Reprise (2006) og Ósló 31. ágúst (2011), gerast í höfuðborg Norðmanna og mætti lýsa sem klassískum raunsæissögum af ungu fólki á krossgötum. Báðar nutu mikillar velgengni á kvikmyndahátíðum beggja vegna Atlantshafsins. Þeim fylgdi hann eftir með frumraun sinni á enskri tungu, Louder Than Bombs (2015), sem skartar stjörnum á borð við Isabelle Huppert og Jesse Eisenberg en sú mynd verður sýnd á hátíðinni auk nýjustu myndar Joachims The Worst Person in the World opnunarmynd RIFF í ár.

Þriðja myndin úr smiðju Joachims verður Ósló, 31. ágúst / Oslo, August 31st og fjallar um dag í lífi Anders, fíkils í bata, sem fer í leyfi frá meðferðarstofnun í einn dag til að fara í atvinnuviðtal. 

Mia Hansen x e1632408598775

Mia Hansen-Løve

Mia fæddist í París árið 1981 og lærði leiklist og starfaði sem gagnrýnandi áður en hún fann fjöl sína sem leikstjóri. Höfundarverk hennar samanstendur af sjö kvikmyndum í fullri lengd sem hafa hlotið verðlaun (Silfurbjörninn á Berlínarhátíðinni m.a.) og lof áhorfenda sem og gagnrýnanda. 

Kvikmyndir hennar eru einkar persónulegar og blanda því sjálfsævisögulega og skáldaða á merkilegan máta. Þaulhugsaður og hófstilltur stíll, sem hefur verið lýst sem gagnsæum, er sérkenni myndanna og leiðir áhorfendur rakleitt inn í söguheiminn. Frásagnirnar, jafnan gáfulegar, einkennast af miklum samtölum og setja persónusköpun og andrúmsloft í forgrunn. Einstakar og tilfinningalega djúpar kvikmyndir hennar skipa framvarðasveit franska bíósins í dag.

Eins og áður sagði verða þrjár myndir sýndar eftir Miu á hátíðinni og eiga þær allar sammerkt að vera lýsandi fyrir stíl hennar en það er Bergman eyja/Bergman Island um par sem lokar sig af á eyju í gömlu afdrepi Ingmars Bergman til að ljúka við kvikmyndahandrit. Það sem verður/Things to Come fjallar um ástríðufulla konu sem er heimspekiprófessor, leikin af Isabelle Huppert. Þegar eiginmaður hennar yfirgefur hana fyrir aðra konu, öðlast hún óvænt frelsi. Að lokum er það Eden saga um táninginn Paul. Hann stofnar plötusnúðahóp ásamt vinum sínum og í sameiningu demba þeir sér í nætur kynlífs, vímuefna og tónlistar.

Í gegnum árin hefur RIFF valið listamenn í kvikmyndageiranum sem þótt hafa sýnt sérstaka listræna sýn eða markað djúp spor í sögu kvikmyndagerðar með framlagi sínu á alþjóðlegum vettvangi. Meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin eru leikarinn Mads Mikkelsen og kvikmyndaleikstjórarnir Milos Forman, Jim Jarmusch, Peter Greenaway og Susanne Bier. Að vanda er heill flokkur tileinkaður verðlaunahöfunum og verða t.d. þrjár myndir eftir bæði Miu og Joachim sýndar á hátíðnni. 

 

Film directors Joachim Trier from Norway and Mia Hansen – Løve from France will be awarded the 2021 RIFF Honorary Award for Creative Excellence. The award will be presented by the president of Iceland, Guðni Th. Jóhannesson, in a ceremonial event at the president’s official residence, Bessastaðir, on the opening day of Reykjavik International Film Festival, 30th September. On that same day, the recipients will partake in a Master Class in Gamlabíó, hosted by film directors Ása Helga Hjörleifsdóttir and Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. This talk will be open to all.

It is safe to say that Trier and Hansen-Løve are among the most interesting and sought after young directors in the world of film today and thus it is a great honour for RIFF to be able to host them at the festival. They both had new releases at Cannes this summer to great acclaim and those will be screened at RIFF, along with some of their previous films. Trier´s film, The Worst Person in the World was awarded Best Actress in Cannes and Hansen-Løve´s film, Bergman Island, received great attention and deserved praise in Cannes this summer.

The Worst Person in the World by Joachim Trier is the opening film at Reykjavik Film Festival this year. The mayor of Reykjavik, Dagur B. Eggertsson will open the festival in an official ceremony in Gamlabíó on September 30th .

image

Joachim Trier

Trier is thought to be one of the most captivating Nordic directors in the film world today and is a leading influence in modern film making despite his youth. The teenage Trier took his initial steps behind the camera while producing skateboarding videos. Later, he went on to study film making in Denmark and the UK where his short films were noticed early on. 

His first two full length feature films, Reprise (2006) and Oslo, August 31st (2011) take place in the capital of Norway and can best be described as classically realistic stories of young people on crossroads. Each of those films received great acclaim on both sides of the Atlantic. Trier followed them up with his debut in the English language, Louder than Bombs (2015) which is bedecked with the stars such as Isabelle Huppert and Jesse Eisenberg. This film will be screened at the festival along with Trier’s most recent release, The Worst Person in the World, which will be the opening film of RIFF this year. 

The third of Trier’s creations to be screened at RIFF this year, is Oslo, August 31st, which tells the story of a day in the life of Anders, an addict in recovery, who leaves a treatment facility on day release to attend a job interview.

Mia Hansen x e1632408598775

Mia Hansen-Løve

Hansen-Løve was born in Paris in 1981, she studied drama and worked as a critic before she moved on to directing. Her creations include seven award winning full length feature films (including the Silver Bear in Berlin) and the deserved praise of critics and audiences alike. 

Her films are very personal productions, a remarkable biographical and fictional blend. Her style is strategic and understated, sometimes described as transparent, which leads the audience directly into the captivating world of her stories. The intellectual narratives are characterised by conversations, placing atmosphere and characterisation in the foreground. Her unique and emotionally fine tuned creations form the front line of French cinema today.

Three of Hansen-Løve’s f ilms will be screened at the festival, all of which are fine examples of her unique style. Bergman Island tells the story of a couple who isolate themselves to complete a film script on an island, an old hangout of Ingmar Bergman. Things to Come deals with a passionate professor of philosophy, acted by Isabelle Huppert. When her husband leaves her for another woman she gains an unexpected sense of freedom. Last, but not least, there will be a screening of Eden, which tells the story of teenage Paul. He starts a DJ collective and together they plunge into the nightlife of sex, drugs and endless music.

Reykjavik International Film Festival has, throughout the years, honored artists in the film industry who have been a leading force, or shown outstanding artistry in their creativity on the international film scene. Among those who have been awarded previously are the actor Mads Mikkelsen and directors Milos Forman, Jim Jarmusch, Peter Greenaway and Susanne Bier. As ever, there is an entire category at the festival, celebrating the achievements of those award winning artists and both Hansen-Løve and Trier will bring three films each to the festival.