Search
Close this search box.

LEITA

Search
Close this search box.

Opnunarhátíð RIFF er í kvöld

Búið ykkur undir ógleymanlega kvikmyndaveislu! Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í dag í 21. sinn við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. Norsk-íslenska kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir á heiðurinn að opnunarmynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í ár.

Elskling eins og heiti myndarinnar er á norsku, eða Elskuleg á íslensku (e. Loveable), er frumraun Lilju á hvíta tjaldinu, en verkið var frumsýnt fyrr á árinu í Osló og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla athygli fyrir tilfinningarík efnistök og einstaka túlkun aðalleikkonu myndarinnar, Helgu Guren sem samkvæmt umsögn Variety þykir sýna einstakan kjark (e. gutsy performance) í hlutverki Maríu sem reynir að sinna fjórum börnum sínum af álíka metnaði og starfsframanum á meðan seinni eiginmaður hennar, Sigmund, er á stöðugum ferðalögum. Dag einn sinnast þeim aftur á móti heiftarlega sem verður til þess að karlinn fer fram á skilnað. Myndin fékk standandi lófatak á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi í júlí og vann til fimm verðlauna.

Á undan opnunarsýningunni á Elskling verður stuttmyndinni Birnir og Bríet brugðið á tjaldið, en hún er eftir Erlend Sveinsson og fjallar um samnefnt tónlistarfólk í hlutverkum pars sem er að reyna að eyða minningum af sambandi þeirra og hvoru öðru yfirleitt. Myndin, sem tekin er upp í einni af flugvélum Icelandair, er einskonar ferðalag um mynd- og hlóðheim plötunnar 1000 orð sem listafólkið sendi nýlega frá sér.

Þýska leikkonan Nastassja Kinski verður heiðruð fyrir Framúrskarandi listfengi á hátíðinni í kvöld, en Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri, afhendir verðlaunin. Kvikmyndagerðakonan Gagga Jóns flytur síðan sérlega Hátíðargusu RIFF.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email