Dagskrá Bransadaga á RIFF 2023

Bransadagar RIFF fara fram 3.-7. október. Glæsileg dagskrá fyrir fagfólk, nemendur í kvikmyndagerð og aðra áhugasama er nú tilbúin. 

Ekki missa af fræðandi pallborðsumræðum um t.d. samframleiðslu og dreifingu á kvikmyndahátíðir og meistaraspjalli við heiðursgesti eins og Isabelle Huppert, Luc Jacquet og Luca Guadanino.

Passi á Bransadaga kostar aðeins 4.990 kr. fyrir fagfólk og nemendur í kvikmyndagerð, og innifelur yfir 20 einstaka viðburði sem lesa má um hér að neðan. 

Þá getur fagfólk í kvikmyndagerð og kvikmyndanemendur keypt hátíðarpassa á RIFF sem gildir á allar myndir hátíðarinnar og innifelur að auki alla 20 bransadagaviðburði.

Sá passi er á aðeins á 17.990kr fyrir fagfólk og 12.990 kr. fyrir nemendur í kvikmyndagerð og kvikmyndafræði.

Nældu þér í passa á bransadaga í gegnum Eventival hér: https://vp.eventival.com/riff/2023/accreditation .

Skoðaðu stútfulla dagskrá Bransadaga hér að neðan:

 

SPENNANDI PALLBORÐSUMRÆÐUR Á BRANSADÖGUM 4.-6 OKTÓBER

Ráðhús Reykjavíkur 4.10. kl. 9:30

Teiknum upp framtíðina: Samþætting tækni og teiknimynda

Pallborðsumræður um þær sviptingar sem eru að eiga sér stað í teiknimyndagerð með tilkomu gervigreindar og hvernig teiknimyndagerð fyrir fullorðna er að aukast. 

Fram koma m.a. Gísli Darri Halldórsson, Sara Gunnarsdóttir og Vladimir Leschiov.

 

Ráðhús Reykjavíkur 4.10. kl. 11:30

Sögur sem hafa áhrif: Áríðandi málefni í gegnum linsu kvikmyndanna

Umræður milli ólíkra kvikmyndagerðarmanna sem öll eiga það sameiginlegt að gera myndir sem fjalla um samfélagsleg málefni.

Fram koma Luc Jacquet, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Emile Hertling, Alexia Muiños og Benjamin Shapiro.

 

Ráðhús Reykjavíkur 4.10. kl. 14:00

Gervigreind og kvikmyndatónlist: Blessun eða bölvun?

Umræður milli tónskálda og fagfólks í tónlist um vinnuumhverfi tónskálda, réttindamál, tilkomu gervigreinar og fleira.

Fram koma m.a. Herdís Stefánsdóttir og Þorleifur Gaukur Davíðsson.

 

Ráðhús Reykjavíkur 5.10. kl. 9:30

Einn tveir og dreifing!  –  Spjall um kvikmyndahátíðir og dreifingu á alþjóðavísu

Umræður sérstaklega miðaðar að ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki um ferlið sem tekur við eftir að kvikmynd er fullkláruð og fer í sölu og dreifingu á kvikmyndahátíðir.

Fram koma Christian Jeune, yfirmaður kvikmyndadeildar Cannes kvikmyndahátíðarinnar, Maud Amson, stjórnandi frá Marche du Film, stærsta kvikmyndamarkaði í heimi, Alessandro Raja, forstjóri og meðstofnandi FestivalScope, Bruno Muñoz, yfirmaður stuttmyndadagskrár Cannes, og Fredéric Boyer, dagskrárstjóri hjá RIFF. 

 

Ráðhús Reykjavíkur 5.10. kl. 11:00

Frönsk-íslensk meðframleiðsla: Alþjóðleg kvikmyndaframleiðsla í kjölfar heimsfaraldurs

Pallborð um meðframleiðslu, með fókus á Ísland og Frakkland og þær áskoranir sem hafa komið upp í kjölfar heimsfaraldurs og hvernig finna má lausnir á þeim.

Fram koma m.a. Michel Plazanet frá CNC, Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður KMÍ, Baltasar Kormákur, leikstjóri og framleiðandi, og Anton Máni Svansson, framleiðandi.

 

Luca Guadagnino, Isabelle Huppert & Vicky Krieps.
Luca Guadagnino, Isabelle Huppert & Vicky Krieps.

MEISTARASPJALL VIÐ HEIÐURSGESTI

Að auki hljóta passahafar aðgang að frábærum meistaraspjöllum með heiðursgestunum okkar, þeim Isabelle Huppert, Luc Jacquet, Luca Guadagnino, Catherine Breillat, Vicky Krieps og Nicolas Philibert. 

Slippbarinn 29.9. kl. 10:30

Meistaraspjall: Nicolas Philibert

Stjórnandi: Helga Rakel Rafnsdóttir


Háskólabíó 29.9. 18:50

Ítarlegt spjall: Nicolas Philibert, eftir myndina On the Adamant.

Stjórnandi: Helga Rakel Rafnsdóttir


Ráðhús Reykjavíkur 3.10. kl. 16:00

Meistaraspjall: Luc Jacquet

Stjórnandi: Sverrir Norland

Hluti af Málþingi RIFF og BIODICE

 

Háskólabíó 3.10. 20:20

Ítarlegt spjall:  Luc Jacquet, eftir myndina Antarctica Calling.

 

Ráðhús Reykjavíkur 4.10. kl. 15:30

Meistaraspjall: Vicky Krieps

Stjórnandi: Arndís Egilsdóttir

 

Háskólabíó 4.10. kl. 19:20

Ítarlegt spjall: Vicky Krieps, eftir myndina Corsage.

Stjórnandi: Arndís Egilsdóttir

 

Norræna húsið 5.10. kl. 17:00

Meistaraspjall: Isabelle Huppert og Luca Guadagnino.

Stjórnandi: Frederic Boyer

 

Háskólabíó 5.10. kl. 19:10

Ítarlegt spjall: Luca Guadagnino, eftir myndina Call Me By Your Name.


Háskólabíó 6.10. kl. 18:30

Ítarlegt spjall: Isabelle Huppert, eftir myndina Sidonie in Japan.

Stjórnandi: Vera Sölvadóttir

Luc Jacquet & Nicolas Philibert

 

AÐRIR VIÐBURÐIR

Ráðhús Reykjavíkur 6.10. kl. 16:00

RIFF Talks

Ungt og efnilegt kvikmyndagerðarfólk kemur fram og heldur stutta tölu í anda TEDxTalks, með það fyrir augum að veita kvikmyndanemum og ungu kvikmyndagerðarfólki innblástur. Meðal þeirra sem koma fram eru Ninna Pálmadóttir, leikstjóri og handritshöfundur, Sol Berruezo, leikstjóri og handritshöfundur, Þorsteinn Sturla Gunnarsson, leikstjóri og handritshöfundur, Kári Úlfsson, framleiðandi, og Arndís Ey, búningahönnuður.

BRANSAPARTÝ

Bransa eða hátíðarpassi gefur einnig aðgang að frábæru Bransapartýi með Franska sendiráðinu, á Slippbarnum 4. október kl. 17:30, hófi með Tromsö Film Festival, 6. október kl. 19:30 í Háskólabíói og RIFF lokapartýi eftir sýningu á lokamyndinni Poor Things, laugardagskvöldið 7. október. 

Frá síðustu Bransadögum RIFF árið 2022
Frá síðustu Bransadögum RIFF árið 2022

 

OPNIR SÉRVIÐBURÐIR

Norræna húsið 2.10. kl. 16:00

Opið samtal við Gísla Snæ Erlingsson

Nýr forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Gísli Snær Erlingsson, mun sitja fyrir svörum á RIFF þann 2. október kl. 16:00 í Norræna húsinu og m.a. ræða sína framtíðarsýn stofnunarinnar. Fulltrúar fagfélanna spyrja hann spjörunum úr og spjallinu stjórna Anton Máni Svansson, Margrét Örnólfsdóttir, Ragnar Bragason og Steingrímur Dúi. 

FRÍR viðburður sem fer fram á íslensku. 

Facebook viðburður: https://fb.me/e/39tv69Smp 

Skráning fer fram frá á Eventival hér: https://vp.eventival.com/riff/2023/events

 

Ráðhús Reykjavíkur 3.10. kl. 16:00

Málþing RIFF og BIODICE

Meistaraspjall við Luc Jacquet og í kjölfarið hefst málþing um áhrif kvikmynda á verndun líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsbreytinga í samstarfi við BIODICE, samtök stofnana sem vinna að eflingu og skilningi líffræðilegar fjölbreytni á Íslandi. Umhverfisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, mun afhenda Luc Jaquet umhverfisverðlaun RIFF, Græna lundann, fyrir framlag sitt til umhverfismála og kvikmyndagerðar. Viðburðurinn er opinn öllum og frítt er inn.

Fram koma m.a. Luc Jacquet, Guðlaugur Þór Þórðarson, Andri Snær Magnason, Hafdís Hanna Ægisdóttir og Unnur Björnsdóttir.

Fundarstjóri: Sverrir Norland

Nældu þér í hátíðarpassa á: www.riff.is/bransadagar 

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email