SMART7 kvikmyndakeppnin hefst í dag með fyrstu sýningu á framlögum ársins á alþjóðlegri kvikmyndahátíð Vilnus, Pavasaris, í Litháen. Keppnin mun fara ferðalag um Evrópu en öll dagskráin verður sýnd á hverri kvikmyndahátíð SMART7 bandalagsins.
Dagskráin í tímaröð:
Hvar: Vilnius IFF Kino Pavasaris (Litháen)
Hvenær: 14. mars – 27. mars
Framlag: Five and a Half Love Stories in an Apartment in Vilnius – Tomas Vengris
Hvar: IndieLisboa IFF (Portúgal)
Hvenær: 23. maí- 2. júní
Framlag: Greice – Leonardo MouramateusWhen:
Hvar: FILMADRID IFF (Spánn)
Hvenær: 6. júní 6 – 11. júní
Framlag: On the Go – Julia de Castro and Maria Royo
Hvar: Transilvania IFF (Rúmenía)
Hvenær: 14. júní – 24. júní
Framlag: Where Elephants Go – Gabi Șarga & Cătălin Rotaru
Hvar: New Horizons IFF (Póland)
Hvenær: 18. júlí – 24. júlí
Framlag: It’s not my Film – Maria Zbąska
Hvar: RIFF (Ísland)
Hvenær: 26. september – 6. október
Framlag: Natatorium – Helena Stefansdottir
Hvar: Thessaloniki IFF (Grikkland)
Hvenær: November
Framlag: The Summer with Carmen – Zacharias Mavroeidis
Um SMART7
Samtökin SMART7 eru stofnuð árið 2023 og mynda og móta samstarfsvettvang sjö virtra kvikmyndahátíða um alla Evrópu, þar á meðal er Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF. Samtökin eru fjármögnuð af Evrópusambandsverkefninu Creative Europe- MEDIA. Hátíðinni er ætlað að fagna fjölbreyttum kvikmyndaiðnaði, styrkja og efla tengsl milli ólíkra menningarheima og deila frásögnum kvikmyndagerðarfólks um alla álfuna. Þá er einnig miðað að því að styrkja og efla nýja kvikmyndagerðarmenn á alþjóðlegum vettvangi.
Hver og ein hinna sjö hátíða velur eina kvikmynd til að senda inn í keppnina sem sýnd verður í heimalöndum hátíðanna sjö. Að sýningum loknum mun dómnefnd, samsett af fulltrúum frá hverju og einu landi kjósa sigurvegara sem hlýtur 5000 € peningaverðlaun.
Vilt þú lesa meira um framlag Íslands? Smelltu hér!