Reykjavik International Film Festival

Kvikmyndasmiðjan

Hvernig virkar kvikmyndasmiðja RIFF?

Kvikmyndasmiðja RIFF er fyrir ungt hæfileikafólk frá Evrópu og Ameríku þar sem það fær tækifæri til þess að hittast í Reykjavík og upplifa það sem er að gerast í kvikmyndaiðnaði beggja vegna Atlantshafsins. Þessi alþjóðlega kvikmyndasmiðja er undir áhrifum frá staðsetningu Íslands þar sem landið er staðsett milli Evrópu og Norður-Ameríku. Staðsetningunni er þannig ætlað að brúa bilið milli heimsálfanna tveggja, landfræðilega og jafnvel enn frekar menningarlega. 


Kvikmyndasmiðja RIFF tekur nú við umsóknum. Umsóknarfrestur er 1. september fyrir  íslenska talenta.

Hvað gerist í Kvikmyndasmiðjunni?

Valið hæfileikafólk fær tækifæri til þess að hitta reynda leikstjóra og framleiðendur úr kvikmyndageiranum sem koma á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í ár. Ennfrekar fær ungviðið tækifæri til þess að senda inn stuttmyndir sínar sem mögulega verða valdar inn í dagskrá RIFF. Stuttmyndirnar munu síðan keppa um Gulleggið, sem eru verðlaun sérstaklega veitt ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki. 

Kvikmyndasmiðjan stendur yfir í þrjá daga, frá 24.-27. september næstkomandi. Þá mun unga kvikmyndagerðarfólkið taka þátt í vinnustöðvum og röð fyrirlestra snillinga úr geiranum. Menntun og skemmtun fer þannig saman hönd í hönd. Dagskráin verður uppfull af góðu efni, dæmum úr kvikmyndum og málstofur. Þar fyrir utan verða sérstakir viðburðir haldnir fyrir kvikmyndasmiðjuna. 

Hverjir geta sótt um?

Þeir einstaklingar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Búa yfir mjög góðri enskukunnáttu
  • Hafa ekki tekið þátt í Kvikmyndasmiðjunni áður. 
  • Senda inn umsókn sem er einungis á ensku. Ef umsækjandi er valinn til þátttöku gæti verið að efni hans verði notað á heimasíðu RIFF eða sem efni í Kvikmyndasmiðjunni. 
  • Eru að vinna við eða læra að verða leikstjórar. 
  • Umsækjandi verður uppfylla eitthvað eftirfarandi:
    • hefur búið til að minnsta kosti eina stuttmynd eða kvikmynd í fullri lengd sem hlaut verðlaun eða var boðið á alþjóðlega kvikmyndahátíð.
    • EÐA er nemi á síðustu tveimur árum í kvikmyndaskóla sem hefur unnið að fleiri en einni stuttmynd.
    • EÐA er fagaðili í annarri grein hljóð/mynda miðils sem er að undirbúa stuttmynd eða kvikmynd í fullri lengd. 
    • Ef
Ef þú svarar einhverri spurningu að ofan játandi, verður tekið við umsókn þinni í Kvikmyndasmiðjuna sem fer fram á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 24.- 27. september næstkomandi. 

SÆKJA UM HÉR

Share on Facebook