Dagskrá '09
Sýningarflokkar RIFF 2009
Vitranir:
Í flokknum Vitranir tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd í keppni um að verða útnefndir Uppgötvun ársins. Sigurvegarinn hlýtur aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann. Leikstjórarnir hafa undantekningarlítið talsverða reynslu af kvikmyndagerð þótt þeir séu að stíga sín fyrstu skref í leikstjórn mynda í fullri lengd. Í þessum hópi eru leikstjórar sem munu móta sýn nýrrar aldar á kvikmyndlistina. Myndir þeirra eru líklegar til að ögra viðteknum gildum í kvikmyndagerð, færa út mörkin, víkka sjóndeildarhring áhorfenda.
Þetta er án efa sá flokkur mynda á RIFF sem vekur mesta eftirvæntingu. Hann nýtur enda ákveðinnar sérstöðu meðal kvikmyndahátíða heimsins því fáheyrt er að aðalverðlaunin séu eyrnamerkt nýju og óþekktu kvikmyndagerðarfólki. Undantekningarlaust hafa verðlaunamyndirnar í Vitranaflokknum notið mikillar athygli í kjölfarið á erlendum hátíðum. Hér vitrast áhorfendum það ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð.
Kastljósið:
Í þessum nýja flokki eru sýndar myndir eftir kunna leikstjóra og myndir sem hafa sópað að sér verðlaunum á viðurkenndum alþjóðlegum hátíðum undanfarið. Þetta eru sem sagt myndirnar sem fagfólki og áhorfendum á erlendum hátíðum hefur þótt hvað mest varið í á árinu.
Fyrir opnu hafi:
Hér rekur á fjörur okkar nokkrar af bestu myndum sem gerðar hafa verið á undanförnum mánuðum. Þetta eru myndir sem notið hafa sérstakrar athygli á erlendum hátíðum, meistarastykki sem kvikmyndaaðdáendur ættu ekki að missa af. Í flokknum má með öðrum orðum finna verk margra færustu og virtustu kvikmyndagerðarmanna heims nú um stundir, allt frá slóvensku stykki um stúdínu sem lifir hættulega tvöföldu lífi til sögu kínverskrar fjölskyldu sem siglir á fljótabáti þangað til hann festist í klakaböndum yfir kaldasta tíma ársins.
Heimildamyndir í brennidepli:
Sérstakur flokkur RIFF er tileinkaður þeirri ómótstæðilegu grósku sem er í heimildamyndagerð nú um stundir. Áhrifamáttur kvikmyndarinnar verður kannski aldrei meiri en í vel gerðri heimildamynd. Áhorfendatölur gætu verið til marks um það en vinsældir heimildamynda hafa vaxið stöðugt undanfarin áratug. Í flokknum má meðal annars finna margverðlaunaða heimildamynd um fjölskylduleyndarmál í Montana og blindan fimm ára gamlan dreng í Kanada sem er rannsóknarlögreglumaður og stýrir útvarpsþætti.
Nýr heimur:
Mikil gróska er í gerð kvikmynda sem fjalla um umhverfismál með einum eða öðrum hætti. Annað árið í röð veitir RIFF þessum myndum sérstaka athygli. Fjölmörg mál ber á góma í myndunum sem sýndar verða, allt frá áhrifum kjötframleiðslu á andrúmsloftið til einna umfangsmestu og umdeildustu réttarhalda sem um getur. Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndina í flokknum.
Sjónarrönd: Noregur:
Norsk kvikmyndagerð hefur lengst af staðið í skugganum af hinni sænsku og dönsku. Þetta hefur breyst undanfarin ár. Gestir RIFF muna vafalaust eftir frábærri opnunarmynd hátíðarinnar í fyrra, O’Horten eftir Bent Hammer en hann er aðeins einn af fjölmörgum norskum kvikmyndagerðarmönnum sem hafa látið að sér kveða á síðustu árum, bæði austan hafs og vestan. Það er því kominn tími til að íslenskir áhorfendur fái að kynnast betur kvikmyndalist frænda sinna í Noregi.
Sjónarrönd: Kanada:
Kanadískir kvikmyndagerðarmenn og -leikarar hafa leitað suður yfir landamærin til Bandaríkjanna eftir frægð og frama. Nefna mætti leikstjóra á borð við David Cronenberg, Paul Haggis, Norman Jewison og James Cameron sem gerði aðsóknarmestu mynd sögunnar, Titanic. Sumir myndu kannski tala um atgervisflótta en það væri samt fráleitt að halda því fram að kanadísk kvikmyndagerð standi ekki traustum fótum. Þar í landi hafa verið gerðar margar áhugaverðustu kvikmyndir síðustu ára. Gestir RIFF fengu til dæmis að kynnast framúrstefnulegum kvikmyndum Guys Maddin á fyrstu hátíðinni 2004 og Atom Egoyan var gestur hátíðarinnar fyrir tveimur árum. Að þessu sinni mun hátíðin bjóða upp á frábært úrval nýrra kanadískra mynda, þar á meðal tvær heimildamyndir en Kanadamenn standa mjög framarlega í þeirri grein kvikmyndalistarinnar.
Tónlistarmyndir:
Reykjavík er þekkt fyrir fjörlegt tónlistarlíf. RIFF hefur leitast við að endurspegla það í dagskrá sinni undanfarin ár. Á síðastliðnu ári var nýr liður kynntur til sögunnar undir heitinu Hljóð í mynd. Hannn inniheldur myndir sem með einhverjum hætti tengjast tónlist sérstaklega, bæði heimildamyndir og leiknar. Sömuleiðis stendur hátíðin fyrir markaði með tónlistarmyndir. Þessi nýbreyttni vakti mikla athygli á síðustu hátíð og má gera ráð fyrir að með henni sé hún að skapa sér sérstöðu.
Í brennidepli: Cory McAbee:
Cory McAbee er þekktastur sem handritshöfundur/leikstjóri/tónskáld og aðalleikari verðlaunamyndarinnar The American Astronaut. Árið 2007 var McAbee einn fimm leikstjóra sem Sundance kvikmyndahátíðin valdi til að þróa kvikmynda- og skemmtiefni fyrir farsíma. Mynd McAbee, Reno, var frumsýnd í febrúar 2007 á 3GSMA ráðstefnunni í Barselónu og hefur orðið uppáhald farsímanotenda víða um heim. McAbee hefur verið gestafyrirlesari um farsímakvikmyndir og vinnslu fyrir smáskjái við ýmis tækifæri, hann kemur fram í heimildamyndinni og bókinni Mobile Planet/Connecting the World, hefur flutt fyrirlestra við háskóla um gervöll Bandaríkin sem og Evrópu og hefur haldið námskeið um kvikmyndagerð í Lissabon, Amsterdam, Lundúnum og nú Reykjavík.
Í brennidepli: João Pedro Rodrigues:
João Pedro Rodrigues nam kvikmyndagerð í Lissabon og starfaði að kvikmyndum um árabil
sem klippari og leikstjóri. Árið 2000 sendi hann frá sér Vofuna, sem vakti nokkra athygli í
heimalandinu, en það var fyrst með fjórðu myndinni, Tvö á reki, að hróður hans óx. Hún var sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2005. Nýjasta mynd hans, Að deyja sem karlmenni, er frá árinu 2009.
Barnamyndir:
Börn hafa ekki verið helsti markhópur kvikmyndaframleiðenda. Þetta er þó að breytast og endurspeglast það í barnadagskrá RIFF í ár. Í fyrra var lögð áhersla á heimildamyndir fyrir börn en að þessu sinni verður sjónarhornið víðara.
Miðnæturbíó:
Aðalmarkmið miðnæturdagskrár RIFF er að gera tilraun til þess að varpa ljósi á dökku hliðar kvikmyndaheimsins. Hér eru sýndar B-myndir af ýmsum gerðum, tilraunaverk virtra leikstjóra og kvikmyndir sem hafa á einn eða annan hátt orðið að költfyrirbæri. Á hverri sýningu er sýnd ein mynd í fullri lengd og ein stuttmynd. Myndirnar eru ekki við hæfi barna.
Myndir og matur:
Flokkur mynda um mat er unninn í samstarfi við samtök áhugafólks um mat og umhverfisvernd sem nefnast Slow Food. Samtökin voru stofnuð 1986 til höfuðs skyndibitamenningu og til verndar staðbundnum mat og matreiðsluvenjum og þeim dýrum og plöntum sem liggja þeim til grundvallar. Meginmarkmið Slow Food er að auka meðvitund fólks um mikilvægi matarmenningar, þekkingar, hefðar og landfræðilegs uppruna matvæla. Í flokknum eru kvikmyndir sem hverfast á einn eða annan hátt um mat. Í tengslum við flokkinn verða matartengdar uppákomur í samstarfi við veitingastaðinn Dill í Norræna húsinu en eldhúsið þar byggir á hugmyndinni um Slow Food.
Ísland í brennidepli:
RIFF er skurðpunktur íslenskrar og erlendrar kvikmyndalistar. Hátíðin hefur alltaf lagt mikið upp úr þátttöku íslenskra kvikmyndagerðarmanna í dagskrá sinni, bæði með því að efna til formlegra sem óformlegra samræðna á milli innlends og erlends fagfólks, með fræðilegri umræðu um kvikmyndalistina og –iðnaðinn og auðvitað með því að sýna íslenskar myndir, nýjar sem gamlar. Að þessu sinni eru sýndar stuttmyndir, heimildamyndir og kvikmyndir í fullri lengd gerðar af íslensku kvikmyndagerðarfólki.
