Reykjavik International Film Festival

Málþing og masterklassar

Óður til kvikmyndanna: Málþing um kvikmyndagagnrýni
19. september kl. 14:00 á Kjarvalsstöðum


Gerald Peary sem er þekktur kvikmyndagagnrýnandi Vestanhafs heldur málþing um
kvikmyndagagnrýni í samstarfi við Blaðamannafélag Íslands. Málþingið verður haldið í tilefni
af nýútkominni kvikmynd hans Óður til kvikmyndanna: Saga Bandarískrar kvikmyndagagnrýni, sem sýnd er á hátíðinni. Velt verður upp spurningum og hugleiðingum um kvikmyndagagnrýni, framtíð hennar og gildi. Ásgeir H. Ingólfsson, blaðamaður stýrir málþinginu. Aðgangur ókeypis.



Málþing: Kvikmyndir og minnihlutahópar
20. september, kl. 14:00 í Norræna húsinu


Kimberly Reed sýnir heimildamynd sína Efnispiltar á hátíðinni en hún hefur hlotið gríðarlega athygli. Myndin fjallar á einstakan hátt um kyngervi og sjálfsmynd og rekur persónulega fjölskyldusögu um geðveiki á nákominn hátt. Kimberley mun segja frá gerð myndarinnar og áhrifunum sem hún hefur haft. Fjallað verður um jaðarmenningu í kvikmyndum og hvernig kvikmyndir geta haft áhrif með því að koma sjónarmiðum minnihlutahópa á framfæri. Efnispiltar verður sýnd kl. 12 í Norræna húsinu og málþingið hefst að sýningu lokinni. 
Stjórnandi málþings: Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarkona. Þátttakendur:
Kimberly Reed, kvikmyndagerðarkona, Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, Anna Jonna Ármannsdóttir, verkfræðingur og formaður Trans Íslands. Aðgangur ókeypis.



Úr myndinni Efnispiltar eftir Kimberly Reed.


Masterklassi með Milos Forman
22. september kl. 15:00 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, Hátíðarsal


Tékkneski leikstjórinn og heiðursgestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, Milos Forman, mun sitja fyrir svörum í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Með honum verður Baltasar Kormákur, kvikmyndaleikstjóri.



Milos Forman er heiðursgestur RIFF í ár.


You Are In Control - Alþjóðleg ráðstefna, Cory McAbee í pallborði
23. og 24. september á Hilton Reykjavík Nordica

YAIC rýnir í nýjar leiðir í dreifingu á menningar- og afþreyingarefni, aukin tækifæri í markaðssetningu, hlutverk samfélagsvefja og samlegðaráhrif mismunandi greina skapandi
geirans. Meðal annars tekur Cory McAbee þátt í pallborðs-umræðu um stafræna dreifingu á menningarefni. McAbee er best þekktur sem handritshöfundur, leikstjóri og leikari í verðlaunamyndinni The American Astronaut. Árið 2007 var Cory valinn af Sundance Kvikmyndahátíðinni til að skapa eina af fyrstu stuttmyndunum sem dreift hefur verið í gegnum farsíma. Myndin sem nefnist Reno hefur notið hylli hjá farsímafyrirtækjum. Christopher Roberts, sem hlaut Sundance verðlaunin fyrir fyrstu kvikmynd sína Welcome to the Dollhouse árið 1996 fjallar um óháða kvikmyndagerð og nýjar leiðir í markaðssetningu. Christopher er framleiðandi myndarinnar House of Satisfaction sem sýnd verður á RIFF. Skráning á: www. icelandmusic.is/conference09.



Málþing og matur: Góður, hreinn og sanngjarn?
24. september kl. 17:30 í Norræna húsinu

Í kjölfar sýningar á myndinni Terra Madre, sem fjallar um hugmyndafræði Slow Food samtakanna verður efnt til málþings um efni myndarinnar og hvernig matvælaframleiðsla á Íslandi kemur heim og saman við einkunnarorð Slow Food sem eru góður, hreinn og sanngjarn. Nokkrir íslenskir bændur og matvælaframleiðendur munu auk þess kynna afurðir sínar í anddyri Norræna hússins og veitingahúsið Dill mun töfra fram margt af því besta úr íslenskri flóru og bjóða uppá matseðil sem  hefur einkunnarorð Slow Food að leiðarljósi. Eins og venjulega kappkostar Dill að nota staðbundið hráefni úr lífrænni ræktun og sjálfbærum sjávarútvegi, en hvatt verður til frekari umræðu um þessi mál og Terra Madre við borðið í tilefni dagsins. Meðal þátttakenda í umræðunum verða gestir frá Slow Food á Ítalíu, þau Paolo di Croce, framkvæmdastjóri Terra Madre og aðalritari samtakanna, og Veronica Veneziano.


Trúlega Forman í Kvöldkirkjunni
24. september kl. 20:30 í Dómkirkjunni í Reykjavík

Dagskrá sem hverfist um Milos Forman. Fjallað verður um kvikmyndagerð Formans og trúarstef í myndum hans. Umsjón með dagskránni er í höndum meðlima Deus ex cinema, sem er rannsóknarhópur um trúarstef í kvikmyndum.



Masterklassi með leikstjóranum Joao Pedro Rodrigues
25. september kl. 10:45 í Norræna húsinu

Joao Pedro Rodrigues, leikstjóri í Brennidepli Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, heldur
masterklassa. Rodrigues nam kvikmyndagerð í Lissabon og hefur starfað bæði sem klippari
og leikstjóri.


Úr mynd Joao Pedro Rodrigues, Að deyja sem karlmenni, sem sýnd verður á hátíðinni.


Málþing um kvikmyndina Umoja: Þorpið þar sem karlar eru bannaðir
25. september kl. 12:00 í Norræna húsinu

Jean-Marc Sainclair, annar kvikmyndagerðar-manna kvikmyndarinnar verður með stutta framsögu og situr fyrir svörum. Hann lauk námi í hagfræði og sjónlistum í París en hefur einnig starfað sem blaðamaður og vinnur í dag við heimildamyndagerð. Brot úr myndinni verður sýnt á málþinginu. Með Sainclair í Norræna húsinu verða tveir mannfræðingar sem leggja erindi sín út frá heimildamyndinni. Aðgangur ókeypis. Í samstarfi við RIKK, Rannsóknastofu í Kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands.



Úr myndinni Umoja: Þorpið þar sem karlar eru bannaðir eftir Jean -Marc Sainclair og Jean Crousillac sem sýnd verður á hátíðinni.

Spjall með leikstjóranum Jessicu Hausner
25. september kl. 15:00 í Norræna húsinu


Austurríska leikstýran, Jessica Hausner er fædd 1972 og fékk sérstök verðlaun í Cannes fyrir útskriftarmynd sína frá kvikmyndaskólanum í Vínarborg. Hún hefur gert 7 kvikmyndir frá því 1994. Íslendingum gefst nú færi á að heyra í Hausner sjálfri og spyrja hana spurninga.



Masterklassi með leikstjóranum Yorgos Lanthimos
26. september kl. 9:30 í Norræna húsinu


Yorgos Lanthimos er grískur kvikmynda-gerðarmaður og leikstjóri fæddur 1973. Hann hefur leikstýrt fjölda mynda en nýlega vann kvikmynd hans, Hundstönn, til Un Certain Regard Prix á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Í masterklassanum fjallar Lanthimos um það hvers konar breytingar verða á lokaútgáfu handrits þar til það verður að kvikmynd.


Úr mynd Yorgos Lanthimos, Hundstönn, sem sýnd verður á hátíðinni.

Share on Facebook