Tónleikar
Olivier Mellano: Kvikmyndatónleikar20. september 18:00 & 21. september 20:00 í Iðnó
Olivier Mellano fl ytur nýja, frumsamda tónlist við klassískan vegatrylli Stevens Spielberg, Duel (1971), en það er fyrsta myndin sem hann gerði eftir að hafa klárað kvikmyndaskólann. Hún segir frá ferðalangi sem er hundeltur af geggjuðum bílstjóra á risastórum trukki. Mellano hefur getið sér gott orð fyrir að semja nýja tónlist við meistaraverk kvikmyndasögunnar. Hann hefur unnið með helstu vonarstjörnum franskrar popptónlistar svo sem Dominique A., Miossec, Laetitia Sheriff og Francois Breut.

Hinn franski Olivier Mellano kemur á kvikmyndahátíð.
Kostar kr. 2.000/ Miðasala í Upplýsingamiðstöð, Eymundsson í Austurstræti.
Tónleikar með Jesse Hartman
24. september á Batteríinu kl. 21:00
Jesse Hartman hefur meðal annars verið kallaður undrabarn í tónlist, nútímalegt beat-skáld og skæruliði meðal ungra kvikmyndagerðarmanna. Jesse fæddist á Long Island en endaði að sjálfsögðu í East Village þegar hann hafði afl að sér kvikmyndafræðilegs bakgrunns. Fyrsta stuttmynd hans ,,Happy Hour” hlaut frábærar viðtökur og vann verðlaun sem besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Síðan hefur hann leikstýrt fjölmörgum tónlistarrmyndböndum og stuttum heimildamyndum og loksins er komið að því að fyrsta mynd hans í fullri lengd, Hús fullnægjunnar, verði frumsýnd. Jesse verður gestur hátíðarinnar og heldur tónleika þar sem hann flytur eigin tónlist.

Jesse Hartman er fjölhæfur listamaður og leikur m.a. aðalhlutverk í mynd sinni,
Hús fullnægjunnar sem sýnd verður á RIFF.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-röðinni Réttir. Nánari upplýsingar um Réttir hér.
Kvikmyndatónleikar THE UNKNOWN (1927)
24. september kl. 22:00 á Bakkusi
Hljómsveitin Malneirophrenia leikur frumsamda lifandi tónlist við sýningu á klassísku og þöglu hryllings-furðuverki Tod Browning, THE UNKNOWN. Þar segir frá handalausa hnífakastaranum Alonzo (Lon Chaney) sem vinnur í fjölleikahúsi og er yfi r sig ástfanginn af fegurðardísinni Nanon (Joan Crawford), sem er að sama skapi hugfangin af glímukappanum Malabar (Norman Kerry). Óneitanlega fer allt á versta veg, líkt og góðu melódrama sæmir, og trylltur af ást leggur hnífakastarinn á ráðin um hrikalega hefndargjörð. THE UNKNOWN er gleymdur gullmoli frá leikstjóra DRACULA (1931) og FREAKS (1932). Malneirophrenia er skipuð píanói, sellói og ramagnsbassa. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæðinu myspace.com/malneirophrenia. Aðgangur ókeypis.
