Aðrir sérviðburðir
Sérviðburðirnir eru listaðir upp í tímaröð.Hátíð um alla borg
17. - 27. september 2009
Á meðan hátíðin stendur yfir iðar allur miðbærinn af lífi; erlendir blaða- og listamenn spássera um göturnar og ýmsir atburðir á vegum hátíðarinnar munu lita mannlífið. Dagskrárliðurinn Hátíð um alla borg á þar stóran hlut að máli. Hvort sem þú ert í hárgreiðslu, að spila keilu, bíða eftir strætó, skoða úrvalið í Skífunni, ert í heimsókn í skólabílnum á Lækjartorgi eða að sötra kaffibolla gætirðu orðið vitni að skemmtilegri sýningu á vegum hátíðarinnar. RIFF hefur í samstarfi við fjölda fyrirtækja og stofnana komið upp sýningartjöldum þar sem sýndar verða íslenskar stuttmyndir og efni úr dagskrá hátíðarinnar.
Gersemar íslenskra kvikmynda
17. - 27. september í Norræna húsinu
Í kjallara Norræna hússins verður sýningin Gersemar íslenskra kvikmynda aðgengileg þar sem hægt verður að skoða, meðal annars, kokteilahristarann úr Stellu í Orlofi og þunga hnífinn úr Hrafninn flýgur. Sýningin kallar þannig fram minningar um margar ógleymanlegar senur íslenskra kvikmynda.
Ljósmyndasýning Diönu Shearwood
17. - 27. september í Norræna húsinu
Diana Shearwood er ljósmyndari í Montréal. Nýjasta verkefnið hennar, Bak við verslunar-
miðstöðina, er mynd af hinu hversdagslega „matarlandslagi“ eins og það birtist á sívaxandi
fjölda fl utningabifreiða sem aka um götur okkar og þjóðvegi. Með því að leggja áherslu á þessa fábreytilegu en litríku hlið umhverfi s okkar hvetur hún áhorfendur til að hugleiða iðnvæðingu matarmenningar okkar. Einkum vill hún beina athyglinni að svokölluðum „matarmílum“ þ.e. þeirri vegalengd sem maturinn ferðast frá túni bóndans á diskinn.
Grettir Kabarett 2009
17. september 2009, Norræna húsið
Ekki gera ekki neitt, gerðu frekar lítið og gerðu það núna! Gerðu stuttmynd á 72 tímum og sýndu svo! Áhugafólk, atvinnumenn, byrjendur, áhugasamir, draumóramenn,… ungir og aldnir! Allir eru velkomnir! Í þriðja sinn býður Grettir Kabarett til sín öllum sem vilja í skapandi samstarf með kvikmyndagerðarmönnum, tónlistarmönnum, listamönnum og leikurum frá ýmsum heimshornum. Skráning og upplýsingar á vikino.reykjavik@gmail.com.
Eldað í anda myndar
20. september kl. 18:00 í Norræna húsinu
Í lok sýningar á myndinni Hádegisverður um miðjan ágúst mun Nanna Rögnvaldsdóttir matgæðingur og matarbókarithöfundur halda stutt erindi um hvernig farið hefur verið með matarhefðir á Íslandi nútímans og varpa fram spurningum um gildi hefðarinnar á nýju Íslandi.

Veitingahúsið Dill í Norræna húsinu mun í beinu framhaldi bjóða bíógestum upp á sérstakan matseðil, í anda hússins, sem styðst við megin skilaboð myndarinnar. Verð á myndina og málsverðinn saman er aðeins 4.000 krónur. Borðapantanir eru teknar í síma 5521522 eða gegnum tölvupóstfangið dillrestaurant@dillrestaurant.is.
Mánudagsmyndir – vídeókvöld hjá leikstjórum
21. september kl. 20:00 heima hjá þremur völdum leikstjórum
Horfa kvikmyndaleikstjórar öðruvísi á kvikmyndir en annað fólk? Hvað finnst þeim einkenna góða mynd? Þessum spurningum og fleirum svara nokkrir kvikmyndaleikstjórar mánudagskvöldið 21. september þegar þeir sýna gestum RIFF uppáhaldsmyndina sína heima í stofu hjá sér. Gestum gefst kostur á að ræða við leikstjórana eftir sýningu myndarinnar.
Leikstjórarnir eru: Friðrik Þór Friðriksson, Hilmar Oddsson & Ragnar Bragason. Upplýsingar og miðapantanir í síma 411-7015.
Bílabíó – Með allt á hreinu
22. september kl. 21:00 á malarplani fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands
Í bílabíói RIFF að þessu sinni verður sýnd hin goðsagnakennda mynd Stuðmanna, Með Allt á Hreinu eftir Ágúst Guðmundsson. Sýningin fer fram á malarplaninu milli Norræna hússins og Háskóla Íslands. Hljóðinu verður varpað á FM 91,9.
1.000 kr. hver bíll.
The Rocky Horror Picture Show
24. september kl. 23 í Háskólabíói
The Rocky Horror Picture Show er líklega ein af þekktustu miðnæturmyndunum svokölluðu.
Hún var upphaflega gerð eftir söngleik sem nefnist einfaldlega The Rocky Horror Show en víða erlendis eru Rocky Horror-leiksýningar þar sem áhorfendur taka þátt í sýningunni daglegt brauð. Fólk klæðir sig í gervi persóna myndarinnar, dansar og tekur undir sönginn. Æðið hefur jafnvel gengið svo langt að nú eru viðurkenndar einskonar „reglur“ um það sem skal gera á ákveðnum stöðum í sýningunni, til dæmis að kasta ristuðu brauði, hrísgrjónum og klósettpappír upp í loft og að sprauta úr vatnsbyssum á fólk. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður nú upp á sýningu af þessu tagi. Það er því rétt að hafa málninguna klára, túbera hárið og búa sig undir eftirminnilegt kvöld! Leikfélag Akureyrar sýnir atriði úr uppsetningu sinni á Rocky Horror fyrir sýningu myndarinnar.
Upplýsingar og miðapantanir í síma 411-7015.

Leiðsögn: Rammar úr Börnum náttúrunnar og Andkristi
25. september kl. 12:15 í Hafnarhúsinu
Listasýning mismunandi ramma úr myndunum Börn náttúrunnar (1991), sem var leikstýrt af Friðriki Þór Friðrikssyni og tilnefnd til Óskarsverðlauna, og Andkristur (2009) eftir Lars von Trier. Umsjónarmenn sýningarinnar, þeir Ari Alexander Ergis og Friðrik Þór Friðriksson veita leiðsögn Opnunartímar Hafnarhúss eru: Alla daga kl. 10:00 til 17:00 og fimmtudaga kl. 22:00.
Hvalapartý
26. september kl. 20:00 í Eldingu
Lokahóf Hátíðar um alla borg fer fram í Hvalabátnum Eldingu, sem er einn vinsælasti áningastaður ferðamanna hér í borg. Á síðari laugardegi hátíðarinnar verður fögnuður í Eldingu en þar munu plötusnúðar leika tónlist, ýmsar léttar veitingar verða í boði, hvalaklassíkerar líkt og Moby Dick verða sýndir og ‘happy hour’ verður á barnum til lokunar. Passar veita forgang.
