Smakkbíó / Tasting Cinema: Shelf Life
RIFF, Mekka og MS kynna: Sérstök sýning á heimildarmyndinni Shelf Life ásamt ostakynningu frá MS og vínkynningu frá Mekka. Að lokinni sýningu verður spjall við Helga Pé, formann félags eldri borgara og sálfræðinginn Sjöfn Evertsdóttur um kosti og gleði þess að eldast.
Shelf Life er hrífandi heimildarmynd sem fjallar um matarmenningu og listina að lifa. Í myndinni kynnumst við litríkum karakterum um allan heim sem hafa helgað líf sitt ostagerðarlistinni og stórum spurningum um lífið og tilveruna er varpað fram.