Search
Close this search box.

LEITA

Search
Close this search box.

Aldrei hafa fleiri sótt um að sýna íslenskar stuttmyndir á RIFF en í ár

… hátt í hundrað sóttu um …

Úrvalið af íslenskum stuttmyndum sem sýndar verða Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár hefur aldrei verið meira, enda hafa ekki fleiri sótt um að vera með á hátíðinni en í ár, eða sem nemur nálega hundrað verkum, sem vitnar um ótrúlega grósku í greininni hér á landi.

Hátíðin hefst í Háskólabíói 26. september og stendur yfir til 6. október.

Leiknar myndum, tilraunamyndir og heimildarmyndir verða sýndar í stuttmyndaflokkunum – og verður hægt á hámhorfa hvern flokkinn af öðrum. Nefna má sem dæmi að það tekur áhorfendur hálfa aðra klukksutund að sjá allar leiknu myndirnar í einni beit, en þær eru frá sjö mínútum að lengd og upp í tæpan hálftíma, eða á við venjulega bíómynd.

„ … allar eru til vitnis um kraftinn í stuttmyndagerð … „

Stuttmyndirnar í ár eru 25 talsins og eru jafn ólíkar að efni og þær eru margar, en allar eru til vitnis um kraftinn í stuttmyndagerð á Íslandi – og afar ríka sköpunargleði.

I

Annalísa Hermannsdóttir sýnir okkur Duld sem fjallar um Vigdísi, yfirmann á lögmannsstofu, og einn morgun í lífi hennar sem gerist í dystópískum hliðarveruleika.

Gunnjón Gestsson er með verkið Gústi sterki og hefnd hafsins sem segir af tveimur sjómönnum sem lenda í klóm ógnvænlegs hafbúa.

Hjördís Jóhannssdóttir mætir með Brúðurina, en sú er eistnesk og fær óvænt pata af óþægilegu máli daginn sem hún er að fara giftast íslenskum karli sínum.

Í stuttmynd Kötlu Sólnes sem ber heitið Veður ræður akri, en vit syni, þarf Hera að gera það upp við sig hvort niðurnítt hús hennar við sjóinn standist lengur ágjöfina.

Kolbeinn Gauti Friðriksson færir okkur myndina Smakk sem gerist í bragðprufufyrirtæki og hverfist um yfirmann sem hvetur starfsmann sinn til dáða.

Nikulás Tumi leikstýrir Bláa stráknum sem greinir frá ungum húsamálara sem endar heima hjá heillandi pari sem hann hitti fyrir tilviljun fyrir utan næturklúbb.

Oddur S. Hilmarsson kynnir fyrir okkur Hús til sölu þar sem fasteignasali nokkur lendir í þeim hremmingum að geta varla selt sitt eigið hús, hvað þá annað.

Og loks segir Sölmundur Ísak okkur söguna af Mikaelu sem hefur einsett sér að missa meydóminn í námi sínu í útlöndum, en myndin heitir Meydómsmissir.

 

II

Í Gumma kaffi eftir þá Adam Emil Ríkharðsson og Nóa Þrastar lenda tveir félagar á bensínstöð í röð atvika sem fær þá til að leiða hugann að heldur bíræfnum þjófnaði.

Hér skoðar skáldið Andri Snær Magnason bráðnandi jökla og skiptir talnagögnum út fyrir persónulega nálgun, í mynd eftir Emmanuel Vaughan-Lee og Adam Loften, Síðasta ísöldin.

Blóm inn við beinið er saga Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur af konu sem kastar hljóðfæri sínu í hyldýpið, en að því búnu taka ástúðin ein og sköpunarþráin að vísa henni veginn.

Við heimsfrumsýnum myndina Sterkari eftir Nataliu Mayling Pachero sem fjallar um endurfundi og tengsl – og Hildu sem gerir allt til að standa sig eftir að faðir hennar veikist.

Aephie Chen og Ingvar Haukur Guðmundsson sýna Mamu en þar fara átthagarnir á meðal frumbyggja í Taívan að leita á Mayaw þar sem hann býr á efri árum í grámyglu Lundúna.

 

III

Ægis Zita mætir með myndina Dæner fyrir lömb og guði sem fjallar vitaskuld um lömb og guði sem nærast á fórnum, virðingarleysi, hlýðni, guðrækni, gleði, undrun og hvert öðru!

Hamskipti eru mynd eftir Pétur Jónsson og gerist í ófyrirséðri framtíðinni þegar jöklarnir eru horfnir af yfirborði jarðar, allir sem einn, og þess er freistað af þálifendum að endurlífga þá.

Tumi Gonzo Björnsson segir söguna af sóðanum Geir í mynd sinni, Menning og listir, en sá hefur störf á listasafni þar sem hann hittir hinn upptrekkta Hörð sem dreymir um að verða listamaður.

Kóngur er nafnið á nýjasta tónlistarmyndbandi íslenska kúnstnersins Brikcs, í leikstjórn Vasco Alexander, en það er tekið upp á listasafni og kafar ofan í margbreytileika mannsins.

Í mynd Simone Hart og Jóns G. Geirfinnssonar, Slit, er ljósi varpað á Ingu Birgittu Spur sem hefur helgað líf sitt forvörslu listaverka eiginmanns hennar heitins, Sigurjóns Ólafssonar.

 

Íslenskar nemastuttmyndir eru síðan eftirfarandi:

Skýjaborgir eftir Magdalenu Ólafsdóttur

Í blóma lífsins eftir Vigdísi Ósk Howser Harðardóttur

Eftir rigninguna eftir Michelle Pröstler

Svefngengill eftir Alfreð Hrafn Magnússon

Alvöru gaur eftir Salvör Bergmann

Leik lokið eftir Salvör Bergmann

Hver ver Alvar eftir Önnu Maríu Jóakimsdóttur-Hutri

 

Það skortir sumsé ekki úrvalið í ár!

 

 

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email