Search
Close this search box.

LEITA

Search
Close this search box.

BONG JOON HO heiðraður á RIFF

BONG JOON HO heiðraður á RIFF

Handhafi þrennra Óskarsverðlauna

Suður-Kóreski kvikmyndaframleiðandinn, handritshöfundurinn og leikstjórinn Bong Joon Ho verður heiðraður á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár, en hún hefst í Háskólabíói 26. september og stendur til 6. október.

Tvær mynda hans, Mother og The Host verða sýndar á hátíðinni og mun hann ávarpa áhorfendur í lokin á sýningu þeirrar síðarnefndu í gegnum fjarfundarbúnað og svara spurningum þeirra úr sal.

Bong hefur farið með himinskautum í kvikmyndagerð sinni um árabil, enda er hann þegar handhafi þrennra Óskarsverðlauna og fjölmargra annarra viðurkenninga fyrir verk sín sem þykja einkennast af innbyrðis átökum kynja og stétta og svörtum galsa.

„Parasite … er ábatasamasta bíómynd

í sögu nokkurs kóresks kvikmyndaleikstjóra“

Hann vakti þegar í stað athygli fyrir kaldranalega kerskni sína í frumrauninni, Barking Dogs Never Bite frá árinu 2000, og var hlaðinn lofi gagnrýnenda fyrir næstu mynd sína, glæpatryllinn Memoriies of Murder sem kom út þremur árum síðar og hreinlega skóflaði gestum inn í kvikmyndahúsin, rétt eins og skrímslamyndin The Host frá 2006.

Umskipti urðu á ferli hans 2013 þegar hann sendi frá sér fyrstu myndina á ensku, vísindaskáldsöguna Snowpiercer sem hann fylgdi eftir með gamansömu hrollvekjunni og ádeilumyndinni Parasite fyrir fimm árum, en hún er ábatasamasta bíómynd í sögu nokkurs kóresks kvikmyndaleikstjóra.

Parasite hlaut bæði Gullna pálmann í Cannes 2019 og Óskarsverðlaunin sem besta myndin, fyrir bestu leikstjórnina og besta frumsamda handritið.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email