Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) auglýsir eftir umsóknum í Verk í vinnslu kynningu: Samframleiðsluvettvang, kynningarvettvang sem fer fram á Bransadögum RIFF þann 2. október 2026.
Verk í vinnslu leiðir saman úrval allt að tíu kvikmyndaverkefna frá Norðurlöndum og heimskautasvæðunum sem eru í framleiðslu eða á frumklippistigi og leita að samframleiðendum. Valin verkefni munu fá tækifæri til að kynna sig fyrir boðsgestum — innlendum og erlendum framleiðendum og öðru fagfólki kvikmyndageirans — sem koma sérstaklega saman fyrir þessa kynningu. Að kynningum loknum fara fram skipulagðir einstaklingsfundir og óformleg tengslamyndun.
HVERJU ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ?
Við leitum að áræðnum, metnaðafullum verkefnum sem bera vitni um skýra sýn leikstjóra frá Norðurlöndum og heimskautasvæðunum. Sérstaklega er kallað eftir verkefnum sem takast á við spurningar um vistfræði, pólitískar og samfélagslegar umbreytingar, sjónarhorn hins ómannlega eða ný frásagnarform sem bregðast við brýnum viðfangsefnum samtímans. Þetta eru þó ekki skilyrði.
HVERJIR GETA SÓTT UM?
Stig: Verkefni í framleiðslu, á lokastigi framleiðslu eða á frumklippistigi
Uppruni: Verkefni (sam-)framleidd á Íslandi, í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Grænlandi eða Færeyjum
Sem leita að: Samframleiðendum — þetta er frumskilyrði fyrir þátttöku í Verka í vinnslu
Form: Kvikmynd í fullri lengd — leikin kvikmynd, heimildarmynd, blandað form eða tilraunakennd kvikmynd
Teymi: Að minnsta kosti einn fulltrúi þarf að vera til staðar í Reykjavík þann 2. október 2026 til að kynna verkefnið
VIÐ HVERJU MÁ BÚAST?
Valin verkefni taka þátt í kynningarlotu þar sem þau kynna sig fyrir boðsgestum — íslenskum, norrænum og alþjóðlegum framleiðendum og öðru fagfólki kvikmyndaiðnaðarins — en að henni lokinni fara fram skipulagðir einstaklingsfundir og kvöldviðburður þar sem lögð er áhersla á tengslamyndun. Viðburðinum verður jafnframt streymt í beinni til valins hóps fagfólks sem tekur þátt í dagskránni gegnum fjarfund.
Vinsamlegast athugið að Bransadagar RIFF greiða ekki ferða- eða gistikostnað þátttakenda í Verkum í vinnslu. Við hvetjum umsækjendur til að kanna möguleika á stuðningi hjá kvikmyndastofnunum í sínu heimalandi.
HELSTU DAGSETNINGAR
Opnun umsókna – 31. mars 2026
Umsóknarfrestur – 3. maí 2026
Tilkynning um val verkefna – Seint í maí 2026
Kynning (Showcase) – 2. október 2026 — Reykjavík
HVERNIG Á AÐ SÆKJA UM
Umsóknum er skilað í gegnum Eventival. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn upplýsingum um verkefnið, stöðu þess hverju sinni, fjármögnun og hverju þeir leita sérstaklega eftir í samstarfi við samframleiðendur.