Riff Logo
Riff Logo
Riff Logo

UNG-NORRÆNA HUGVEITAN

Ung-Norræna hugveitan fer nú fram í þriðja sinn og er sem fyrr hugsuð sem þátttökuvettvangur fyrir ungt og upprennandi listafólk frá Íslandi og hinum Norðurlöndunum milli 18 og 30 ára. Hugveitan er hvorki pallborð né fyrirlestur, heldur virkur vettvangur þar sem ungt fólk fær rými til að tala frá hjartanu um veruleika þeirra sem eru á fyrstu metrum ferilsins í kvikmyndagerð, þar sem reyndir einstaklingar úr greininni taka þátt í raunverulegu samtali.  

RIFF er innilega umhugað um að skapa rými fyrir nýjar raddir. Við trúum því að framtíð norrænnar kvikmyndagerðar velti á því að hlusta á nýjar raddir úr kvikmyndagerð samtímans.

FYRRI ÁR

2024 – Upphafið

Fyrsta hugveitan gaf tóninn hvað varðar formið og framkvæmdina: rými fyrir upprennandi listafólk til að tjá sig um reynslu um síbreytilegan heim kvikmyndagerðar samtímans. Samtalið tók meðal annars til sjálfbærni, aðgengis, inngildingar, og breytilegra aðstæðna til kvikmyndagerðar á Norðurslóðum nú um stundir.

2025 – Ósýnilega miðstigið

Annað skipti hugveitunnar var haldið í Norræna húsinu 2. Október 2025 og hverfðust umræður 15 þátttakenda, sem búsettir eru á Íslandi, um þemað “Ósýnilega miðstigið: ekki nemi, ekki atvinnumaður – hvað nú?” þar rætt var um óvissuna og efann sem umlykur færsluna frá námi til atvinnu í greininni.

Kvikmyndagerðarkonan Pipaluk K. Jørgensen, sem einnig er stofnandi Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Nuuk, og leikstjórinn Arnar Már Vigfússon stýrðu hugveitunni í þetta sinn og beindust umræður að bæði tilfinningalegum og skipulagslegum kostnaði þess að hefja feril í kvikmyndagerð innan lítils kvikmyndaiðnaðar. Leiðbeinendurnir  Erlendur Sveinsson (Ísland), Francisco Dias (Portúgal) og Valentina Bronzini (Ítalía/Þýskaland) tóku þátt í opnu samtali með þátttakendum.

 

54040038315 af8b8c611e c
54843124990 c25553a28f k