Search
Close this search box.

LEITA

Search
Close this search box.

Hátíðarpassi Gjafakort

23,580 kr.

RIFF býður gjafahátíðarpassa á hátíðina. Passi á RIFF er tilvalin gjöf fyrir list-og kvikmyndaunnendur og fólk sem á allt.

Þessi passi gefur eiganda þess aðgang að öllum sýningum að eigin vali! Vinsamlegast athugið að hátíðarpassanum er hvorki hægt að deila með öðrum né nota á sérstaka viðburði nema annað sé tekið fram. Einn passi gildir einu sinni á hverja sýningu.

Gjafahátíðarpassinn gildir á RIFF sem haldin verður í 22. Sinn þann 25. september til 5. október 2025. 

Athugið að passar og klippikort RIFF eru rafræn. Við kaupin verður PDF-skrá gerð aðgengileg sem hægt er að hlaða niður og/eða prenta út. Einnig er unnt að sækja gjafakort á skrifstofu RIFF, Tryggvagötu 11, virka daga á milli kl. 10-12 og 13-17. Við bjóðum jafnramt upp á þann möguleika að senda gjafakort í pósti á kostnað viðtakenda. 

Viðtakandi gjafakortsins getur síðan skipt því út fyrir passa í miðasölunni í Háskólabíó frá og með 22. september 2025 eða hvenær sem er á meðan hátíðinni stendur. 

Hátíðarpassinn er ekki endurgreiddur.