Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var síðastliðinn föstudag, 8. mars 2024. Baráttan fyrir jafnrétti stendur þó alla daga ársins.
Á þessum degi er vert að staldra við og minnast þeirra dugmiklu og hugrökku kvenna sem ruddu brautina fyrir þær sem á eftir komu. Við viljum sömuleiðis minna á mikilvægi þess að halda umræðunni um jafnrétti á lofti, þar sem slík mannréttindi eru ekki sjálfsögð réttindi.
Íslandi hefur oft verið lýst sem jafnréttisparadís, en þó sýna nýlegar rannsóknir að kynjaslagsíðan í skapandi greinum og kvikmyndagerð er töluverð og víða er langt í land. Þrátt fyrir það eru góðir hlutir að gerast og íslenskar kvikmyndagerðakonur og -kvár eru í stórsókn.
Stelpur filma!
RIFF vill leggja sitt af mörkum í þágu jafnréttis í greininni, meðal annars með umsjón átaksverkefnisins Stelpur filma! sem starfar að fyrirmynd alþjóðlegu Stelpur rokka! samtakanna, sem rekin hafa verið hér á landi í áratugi. Stelpur filma! hefur notið liðsinnis einstakra hæfileikakvenna sem hafa lagt sig fram um að efla nýja kynslóð stúlkna og hinsegin ungmenna til dáða í greininni.
Kvennaverkfall
Árið 1975 var sögulegt í íslenskri mannréttindabaráttu, þegar íslenskar konur lögðu niður störf og mættu á mótmælafund, þar sem þær kröfðust réttinda, betri kjara og virðingar. Enduróms þessa atburðar gætir æ síðan í gegnum áratugina og þann 24. október 2023 var boðað til kvennaverkfalls á ný.
Kvikmyndin The Day that Iceland Stood Still (2023) eftir Pamelu Hogan segir frá þessum atburðum með mögnuðum hætti. Kvikmyndin var sýnd á RIFF 2023.
Áfram stelpur!