Dagskrá: Samræður til áhrifa
Í kjölfar valinna sýninga úr dagskrárliðnum Önnur framtíð á RIFF fara fram óformleg samtöl þar sem kvikmyndagerðarfólk, sérfræðingar og áhorfendur ræða þau umhverfis- og samfélagsmál sem kvikmyndirnar varpa ljósi á.
Síðasti sendiherrann / The Last Ambassador
(AUS)
17:30 | 27.09 | Háskólabíó Sal 2
80min + 45min
Leikstjóri: Natalie Halla
Pallborðsgestir: Natalie Halla, Brynja Dögg Friðriksdóttir (kvikmyndagerðarkona og mannfræðingur, fyrrum starfsmaður við utanríkisráðuneytið í Afganistan
Umræðustjóri: Lára Jónasdóttir, alþjóðlegur verkefnastjóri með reynslu frá átakasvæðum
Sendiherra Afganistans í Vín, Manizha Bakhtari, stendur áfram vaktina eftir valdatöku Talíbana og er skyndilega í forsvari fyrir ríki sem er ekki lengur viðurkennt meðal þjóða heims. Hún heldur ótrauð áfram baráttu sinni fyrir réttindum afganskra kvenna—ein, án viðurkenningar og undir sívaxandi þrýstingi.
Allt sem eftir lifir / All That’s Left of You
(DE, CY, PS, JO, GR, QA, SA)
17:30 | 28.09 | Háskólabíó Sal 2
145min + 45min
Leikstjóri: Cherien Dabis
Pallborðsgestir: Cherien Dabis, Hjálmtýr Heiðdal (Formaður félagsins Ísland-Palestína), Magnea Marinósdóttir (stjórnmálafræðingur & sérfræðingur á sviði jafnrétti kynjanna með alþjóðlega sérþekkingu á stjórnmálaátökum)
Umræðustjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson, blaðamaður og rithöfundur
Í þessari hrífandi stórmynd Cherien Dabis, sem spannar heilan áratug, segir frá palestínsku pari sem finnur kjark og von mitt í linnulausum átökum. Þau standa frammi fyrir örlagaríkri ákvörðun sem tengist mótmælum á Vesturbakkanum — atburði sem á eftir að umbreyta örlögum fjölskyldunnar.
Trufluð táningsár / Teenage Life Interrupted
(NO)
Leikstjóri: Åse Svenheim Drivenes
17:15 | 29.09 | Háskólabíó Sal 2
90min + 45min
Pallborðsgestir: Åse Svenheim Drivenes, Elin Drivenes (læknir í myndinni), Kari Moe & Gudmundur Gunnarsson (framleiðendur), Geir Gunnlaugsson (Prófessor í hnattrænni heilsu)
Umræðustjóri: Hólmfríður María Ragnhildardóttir, blaðamaður
Tveir læknar í Tromsø berjast við að hjálpa ungu fólki með óútskýrð einkenni. Líf þeirra hefur verið sett á bið vegna veikinda sem enginn getur útskýrt. Á bak við þau standa fjölskyldur sem þrá sárlega svör – og tveir læknar sem sérhæfa sig í að greina mynstur sem aðrir hafa misst af. Með því að spyrja spurninga sem sjúklingarnir hafa aldrei heyrt áður, nálgast þau skýringuna – svar fyrir svar.
5 ár af byltingu / 5 Seasons of Revolution
(DE, SY, NO, NL, QA)
Leikstjóri: Lina
19:10 | 30.09 | Háskólabíó Sal 2
95min + 45min
Pallborðsgestir: Lina, Þórir Jónsson Hraundal (lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.), Magnea Marinósdóttir (stjórnmálafræðingur & sérfræðingur á sviði jafnrétti kynjanna með alþjóðlega sérþéttingu á stjórnmálaátökum)
Umræðustjóri: Katrín Jakobsdóttir
Lina er ungur sýrlenskur blaðamaður sem byrjar að taka upp vini sína þegar mótmæli brjótast út í Damaskus. Árin líða og Lina snýr aftur og aftur að víglínum heimalands síns, undir sífellt nýjum dulnefnum, meðan vinir og ættingjar glata ýmist frelsi sínu eða lífi. Mynd hennar verður í senn vitnisburður um frelsisbaráttu þjóðar og lífsbaráttu hennar.
Smákarl gegn Pútín / Mr. Nobody Against Putin
(DK, CZ)
Leikstjórar: Pavel Talankin, David Borenstein
19:10 | 3.10 | Háskólabíó Sal 3
90min + 45min
Pallborðsgestir: Pavel Talankin, David Borenstein, Rósa Magnúsdóttir (prófessor í sagnfræði, sérsvið við hugmyndafræði og áróður Sovétríkjanna, kalda stríðinu og alþjóðlegri samtímasögu), Jón Ólafsson (prófessor í heimspeki, sérsvið í rússneskum fræðum)
Umræðustjóri: Bogi Ágústsson, sjónvarpsfréttamaður
Pasha er vinsæll og dáður grunnskólakennari í rússnesku þorpi sem vaknar upp við þann vonda draum að áróður frá ríkinu hefur gegnsýrt skólastofuna í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Meðan honum er skipað að boða hugmyndafræði hernaðar skrásetur hann breytingarnar í skólanum, uns valið stendur um að vera um kyrrt–eða flýja á brott.
