
- This event has passed.
Barnadagskrá RIFF 6+
september 30, 2021 @ 11:30 - 13:00
Free
Í þessum flokki má finna skemmtilegar og áhugaverðar myndir fyrir ungmenni á öllum aldri. RIFF veitir öllum íslenskum leik- og grunnskólum aðgang að dagskránni ásamt kennsluefni.
BÖRNIN / THE CHILDREN/ BARNA
Börn uppgötva töfrastaði innan um trjágreinar sem fullorðna fólkið vildi fjarlægja.
Liss-Anett Steinskog NO 2021 / 11 min
URSA – SÖNGUR NORÐURLJÓSANNA/ URSA – THE SONG OF THE NORTHERN LIGHTS/ URSA – NORDLYSETS SANG
Ísbjarnarhúnn er aleinn við dimmt norðurskaut. Norðurljós og fallegt lag leiða hann vonandi til móður sinnar.
Natalia Malykhina NO 2021 / 10 min
ELDSPÝTUR/ MATCHES
Barn leikur með eldspýtur og segir frá draumum sínum og ótta. Eldspýturnar ljá frásögnunum líf.
Géza M. Tóth HU 2019 / 11 min
ÆRSLAGANGUR/ THE FROLIC/ CHÓNG XÌ
Börn ærslast með skordýrum í garðinum.
Yi-Han Jhao TW 2020 / 5 min
FLÓÐIÐ MIKLA/ THE GREAT OVERFLOW/ ISO YLIMÄÄRÄ
Eftir mikla flóðbylgju fljóta tveir vinir niður ánna á húsþaki, hitta furðuverur og verða vitni að mikilli mengun.
Magnus Fredriksson SE 2021 / 14 min
ÚLFUR/ LUPIN
Ylfingur yfirgefur greni sitt í fyrsta sinn án vitundar móður sinnar og týnist og verður hræddur.
Hélène Ducrocq FR 2020 / 11 min
REGNHLÍFAR/ UMBRELLAS
Lítil stúlka sem elst upp undir verndarvæng föður síns lærir að horfast í augu við það sem hún óttast.
José Prats, Álvaro Robles
SAMTALS / TOTAL 74 MIN