Upplifðu eina stærstu kvikmyndaklassík allra tíma með hamborgara sem sækja innblástur beint í heim myndarinnar.
Gestir geta valið um eftirfarandi hamborgara:
-Royale with Cheese – af því við Íslendingar notum metrakerfið og höfum ekki hundsvit á hvað kvartpundari er.
-Big Kahuna Burger – sólrík Hawaii stemning í hamborgara.
-The Durward Kirby Burger – veganborgari fyrir þá sem kjósa, jafnvel þó Mia Wallace hafi pantað hann blóðugan.

Með þessu fá gestir að sjálfsögðu hinn nafntogaða 5 dollara mjólkurhristing eins og hann heitir í myndinni.
Portúgalska stórleikkonan Maria de Medeiros tekur þátt í spurt og svarað að sýningu lokinni. Hún fór með eitt aðalhlutverkanna í myndinni sem Fabienne, unnusta Butch (Bruce Willis).
Gestir eru hvattir til að mæta uppábúnir í anda myndarinnar til að gera viðburðinn sem eftirminnilegastan.
Verð 7.900 kr.