Hellabíó: Raiders of the Lost Ark

Hellabíómynd RIFF í ár er engin önnur en Ránið á týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark), sem var aðsóknarmesta mynd veraldar árið 1981 og telst í dag til allra bestu ævintýramynda kvikmyndasögunnar. Myndin festi Steven Spielberg í sessi sem einn athyglisverðasti leikstjóri samtímans og gerði Harrison Ford að stærstu kvikmyndastjörnu heims.

Kvikmyndin hlaut var tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta mynd og Spielberg sem besti leikstjóri. Á endanum hreppti hún fern verðlaun; fyrir bestu klippingu, besta hljóð, bestu leikmynd/listræna stjórnun auk sérstakrar viðurkenningar fyrir tæknibrellur.

Sýningin er haldin í samstarfi við The Lava Tunnel

Vinsamlegast athugið að barnamiði er fyrir 12 ára og yngri.

Komdu og upplifðu eitt magnaðasta ævintýri kvikmyndasögunnar – Raiders of the Lost Ark í Hellabíói RIFF.

Price range: 6 050 kr. through 8 990 kr.

 kr.

Lýsing

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0