Fjölbreyttar og framsæknar myndir keppa um Gullna Lundann Í VITRANAflokki aðalverðlaun RIFF

Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár. Um er að ræða myndir sem spanna allt litróf mannlegs veruleika, allt frá glæpamyndum yfir í mikið drama. Grái fiðringurinn, bankaglæpir, dulrænar upplifanir, morð og horfnar ástir eru meðal umfjöllunarefna.

„Þetta eru vel gerðar framsæknar myndir sem oft ögra viðteknum gildum í kvikmyndagerð og vísa veg kvikmyndalistarinnar til framtíðar. Marga þyrstir í að sjá myndir sem eru ekki gerðar eftir sömu formúlunni en það þarf snillinga til að brjóta upp hefðirnar þannig að það gangi upp. Myndirnar eiga það allar sameiginlegt að ögra forminu án þess að missa athygli áhorfandans. Virkilega spennandi kvikmyndir sem keppa í ár og það var úr vöndu að velja’’ segir Hrönn Marinósdóttir

Margar þeirra hafa nú þegar hlotið tilnefningar á öðrum hátíðum það sem af er þessu ári, tvær þeirra eru tilnefndar sem bestu nýliðarnir á Cannes til The Golden Camera Award og enn aðrar hafa þegar unnið verðlaun. T.d. vann Tungl 66 spurningar í leikstjórn Jacqueline Lentzou Cineuropa verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Sarajevo og Queen of glory í leikstjórn Nana Mensah hlaut verðlaun í Tribeca fyrir ,,Best New Narrative Director’’

Azor 

Svissneskur bankamaður fer í sendiför til Argentínu til að leysa af hólmi samstarfsmann sem hefur horfið sporlaust. Leynilegt samfélag peningaaflanna leiðir hann á hættubraut. 6 tilnefningar, meðal annars á Berlínarhátíðinni og Kvikmyndahátíðinni í London. Leikstjóri, Andreas Fontana.

 

Bruno Reidal, Confessions of a Murderer

Ungur guðfræðinemi myrðir dreng árið 1905 og gefur sig fram við yfirvöld. Læknar skipa honum að skrifa æviminningar sínar til þess að reyna að skilja hvaða kenndir lágu að baki ódæðisverkinu. Leikstjóri Vincent Le Port.

Clara Sola 

Hæglát fertug kona í Kostaríku verður fyrir kynferðislegri og dulrænni vakningu og hefur vegferð til að losna úr viðjum afturhaldssamra trúar- og félagslegra hefða.Leikstjóri: Nathalie Álvarez Mesén

 

Moon, 66 questions

Ung kona sem býr í París þarf að snúa aftur til Aþenu til að annast föður sinn, sem hún hefur fjarlægst. Yfir tilfinningasamt sumar kemst hún að ýmsu leyndu í hans fari og samband þeirra grær fyrir vikið. Leikstjóri Jacqueline Lentzou

Queen of Glory

Bráðgáfuð dóttir ganískra innflytjenda er í þann mund að kasta menntun sinni fyrir bí og elta kvæntan elskhuga sinn þvert yfir landið, er móðir hennar fellur frá og eftirlætur henni bókabúð í Bronx-hverfinu. Leikstjóri: Nana Mensah

Sisterhood

Vinátta tveggja unglingsstúlkna, sem eru óaðskiljanlegar, mætir þolraun þegar þær flækjast í morð á bekkjarsystkini sínu. Leikstjóri: Dina Duma

What do we see when we look at the sky?

Sumarástin liggur í loftinu í smábæ einum í Georgíu. Áform Lísu og Giorgi um stefnumót breytast á augabragði er þau vakna umbreytt og hafa þar með  enga leið til að þekkja hvort annað. Leikstsjóri: Alexandre Koberidze

Wild Men

Til að losna við gráa fiðringinn hefur Martin flúið úr siðmenningunni í skóglendið til að lifa eins og villimaður. Þar rekst hann á dópmangara sem hristir upp í leit hans að sjálfinu. Leikstjóri: Thomas Daneskov

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email