Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

Það er Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík mikill heiður að tilkynna leikkonuna Kim Novak sem einn af heiðursgestum RIFF 2025. Af þessu tilefni verða sýndar vel valdar myndir með hinni goðsagnakenndu leikkonu, ásamt því að hún mun taka þátt í umræðum eftir sýningu. Þetta er sannarlega einstakt tækifæri til að berja augum stjörnu sem kaus að yfirgefa Hollywood á sínum forsendum, en er snúin aftur í sviðsljósið með nýja mynd í farteskinu.

Nýja myndin, sem er heimildamyndin Kim Novak’s Vertigo, verður opnunarmynd RIFF í ár og var heimsfrumsýnd fyrr í mánuðinum á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Í kjölfarið mætir leikkonan á RIFF og mun taka þar við heiðursverðlaunum hátíðarinnar. Leikstjóri myndarinnar, Alexandre O. Philippe (sem var heiðursgestur RIFF 2022, vel að merkja) kemur einnig og verður viðstaddur sýninguna á RIFF.

News on the website cave in 1
kim novak

Goðsögn í lifanda lífi

Kim Novak er ein af goðsögnum gullaldar Hollywood, leikkona sem setti mark sitt á kvikmyndasöguna í verkum sem enn lifa góðu lífi á hvíta tjaldinu og munu gera það um. ókomna tíð. Hún fæddist í Chicago árið 1933 og steig sín fyrstu skref í Hollywood um miðjan sjötta áratuginn. Novak skaust þegar upp á stjörnuhimininn, ekki einvörðungu sem tákn fegurðar og dularfulls glæsileika, heldur sem listamaður sem bjó yfir einstöku næmi til að miðla brothættum kjarna sem bjó á bak við glamúrinn.

Ferill hennar spannar fjölmörg eftirminnileg hlutverk, en hún er ef til vill hvað oftast tengd við meistaraverk Alfred Hitchcock, Vertigo (1958). Þar skapaði hún eitt flóknasta og áhrifamesta kvenhlutverk kvikmyndasögunnar. Novak starfaði einnig með fleiri risum kvikmyndasögunnar á borð við Otto Preminger, Billy Wilder og Sidney Lumet, og sannaði með hverri frammistöðu fjölbreytta leikhæfileika og listrænan styrk.

Kim Novak er þó meira en kvikmyndastjarna. Hún er táknmynd tímabils þegar kvikmyndin var í senn stórbrotin list og ævintýralegur leikvöllur ímyndunaraflsins. Með verkum sínum hefur hún veitt kynslóðum áhorfenda innblástur og minnir okkur á að á bak við goðsögnina leynist ávallt kjarni mannlegra tilfinninga. Þessu hafa áhorfendur fengið að kynnast svo um munar í stórmyndum þeim sem hún hefur leikið í og nægir þar að nefna tímalaust meistaraverk Alfred Hitchcock, Vertigo (1958) og stórmynd Otto Preminger, The Man With the Golden Arm (1955). Í tilefni af komu hennar mun Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík bjóða upp á einstakt tækifæri til að sjá stórmyndina Vertigo á hvíta tjaldinu í Háskólabíó. Viðbúið er að færri komist að en vilja.

Opnunarmynd RIFF 2025: KIM NOVAK‘S VERTIGO

Kim Novaks Vertigo H 2025

Óhætt er að segja að opnunarmynd RIFF árið 2025 sé með sögulegasta móti en það er heimildamyndin Kim Novak’s Vertigo sem heimsfrumsýnd var fyrir rétt tæpum mánuði á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum! Það sem meira er, stjarna myndarinnar– Kim Novak, Hollywood goðsögnin sjálf–verður viðstödd sýninguna í Háskólabíói sem ljær viðburðinum óneitanlega meiri ljóma.

Novak fór sem kunnugt er með himinskautum á 6. áratugnum og lék þá í hverri stórmyndinni á fætur annarri, á móti ýmsum helstu stjörnum Hollywood, þar á meðal James Stewart, Kirk Douglas, Tony Curtis, William Holden og tvisvar á móti Frank Sinatra. Þegar leið á ferilinn tók henni að leiðast að vera alltaf sett í hlutverk ljóshærðu gyðjunnar, á meðan hún sóttist stöðugt eftir fjölbreyttari hlutverkum. Hægt og rólega ákvað hún að draga sig í hlé frá Hollywood og upp úr 1970 hafði hún að mestu hætt að leika í kvikmyndum, flutti norður til Oregon til að helga sig málaralistinni ásamt bústörfum í félagi við eiginmann sinn, dýralækninn Robert Malloy.

Það hefur ávallt þótt tíðindum sæta þegar farsælar filmstjörnur yfirgefa draumaverksmiðjuna Hollywood á eigin forsendum–bæði af því svo ótalmargir eru vongóðir um að fá þar inni, og svo af því miklu mun algengara er að kvikmyndabransinn skelli hurðinni á nefið á leikurum sem teljast ekki nógu spennandi lengur. En Kim Novak sneri því tafli við og fluttist sem fyrr segir á brott í faðm náttúrunnar ásamt eiginmanni sínum, fjarri glaumnum og glysinu í Hollywood.

En Kim Novak er snúin aftur í sviðsljós kvikmyndanna, og sem fyrr er hún alfarið á sínum forsendum, og hún kemur til Reykjavíkur með opnunarmynd RIFF í farteskinu, beint af heimsfrumsýningunni á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Njótið vel, RIFFarar, því þetta tækifæri mun ekki bjóðast aftur.

Special events FB 6

BÚBBLUSÝNING MEÐ KIM NOVAK: PAL JOEY (1957)

Það er engin venjuleg hátíðarsýning sem RIFF býður gestum sínum til í ár. Við sýnum hina frábæru mynd Pal Joey (1957) þar sem heiðursgestur hátíðarinnar í ár, Kim Novak, fer á kostum ásamt tveimur af stærstu stjörnum allra tíma, Frank Sinatra og Ritu Hayworth. Ekki nóg með það heldur mun Kim Novak heiðra bíógesti með nærveru sinni á þessari sýningu þar sem gestum verður boðið upp á freyðivín til að skála fyrir sýninguna og hylla stjörnu kvöldsins, Kim Novak, áður en haldið verður inn í bíósalinn til að horfa á hina klassísku bíómynd.

Í myndinni segir frá Joey Evans (Sinatra), sem er kvensamur næturklúbbasöngvari. Eftir margs konar misheppnuð ástarævintýri stendur hann frammi fyrir tveimur valkostum; að giftast Veru (Hayworth) sem er vel stæð ekkja og fá hana til að gera honum kleift að opna næturklúbbinn sem hann hefur alltaf dreymt um að eignast, eða þá taka saman við dansarann Lindu (Novak) sem hann er raunverulega hrifinn af. Urmull þekktra laga er fluttur í þessari stórskemmtilegu mynd, meðal annars eitt þekktasta lag Sinatra, „The Lady is a Tramp”.

Hér má lofa mikilli og líflegri skemmtun, fyrir utan hið einstaka tækifæri að sjá myndina að viðstaddri einni af stjörnum myndarinnar, leikkonu sem deildi baksviðsaðstöðu með Frank Sinatra og Ritu Hayworth. Magnaðri tímavél–fyrir tilstuðlan töfra kvikmyndanna–er trauðla hægt að hugsa sér.

special events fb 7 720

Vertigo eftir Hitchcock, að viðstaddri Kim Novak

Það er kvikmyndaunnendum fágætur happafengur að fá tækifæri til að sjá meistaraverk Alfred Hitchcock frá 1958, Vertigo, í bíósal, en að sjá myndina að viðstaddri aðalleikkonunni er eitthvað sem má sannarlega kalla einstakt tækifæri. Myndin, sem oftar en ekki er talin sú besta sem meistari Hitchcock leikstýrði, er með James Stewart og heiðursgesti RIFF, Kim Novak, í aðalhlutverkum. Stewart leikur rannsóknarlögreglumann í San Francisco, sem þjáist af lofthræðslu á lokastigi, og þróar með sér þráhyggju gagnvart ókunnri konu sem hann er fenginn til að elta. Þegar konan hverfur svo beinist áhugi hans að annarri konu sem líkist mjög þeirri fyrri og fyrr en varir sogast hann inn í veröld banvænnar blekkingar. Miðar á allar sýningar og sérviðburði með Kim Novak eru komnir í sölu. Hátíðin fer fram dagana 25.sept. til 5.okt..