Lýsing
Vinapassinn 3+1 er tilvalinn fyrir alla kvikmynda-, menningar- og hátíðarunnendur sem vilja njóta kvikmynda saman.
Passinn inniheldur fjóra miða á verði þriggja, sem gerir þér og þremur vinum eða fjölskyldumeðlimum kleift að upplifa kvikmyndasýningu saman á RIFF (sérviðburðir undanskildir). Vinsamlegast athugið að allir 4 miðar verða að vera nýttir á sömu sýninguna. Hægt er að virkja Vinapassann og leysa út miða í miðasölubás RIFF í Háskólabíó, annaðhvort sama dag og sýningin er eða þegar miðasölubásinn opnar. Sjá nánari upplýsingar um opnunartíma hér.
Vinapassinn gildir á RIFF sem haldin verður í 23. sinn dagana 24. september til 4. október n.k.
Allir passar og öll klippikort RIFF eru rafræn – þú færð passann þinn í tölvupósti einni viku fyrir hátíðina.
Athugið að Vinapassinn fæst ekki endurgreiddur.





