Það er RIFF sönn ánægja að setja Sviss í fókus að þessu sinni og verða á annan tug svissneskra mynda sýndar á hátíðinni í ár. Í sérstökum flokki kynnir RIFF úrval nýrra mynda sem gefa bíógestum Háskólabíós bragðið af því ferskasta sem er að koma frá bíólandinu Sviss þessi misserin.
Heiðursgestir frá Sviss á RIFF 2025
Þá heiðra svissneskir heiðursgestir hátíðina að þessu sinni með nærveru sinni og verkum. Annars vegar mætir hin margverðlaunaða Ursula Meier sem handhafi Heiðursverðlauna RIFF fyrir Framúrskarandi listfengi, og hins vegar koma hinir frumlegu og framsæknu Zürcher-bræður, Ramon og Silvan, og verða þeir heiðraðir á hátíðinni sem Upprennandi meistarar. RIFF sýnir úrval af verkum þessara sérlega áhugaverðu listamanna dagana 25.september til 5.október og er allt áhugafólk um spennandi evrópska kvikmyndagerð hvatt til að missa ekki af þessu tækifæri til að berja augum myndir sem annars rata ekki svo glatt í kvikmyndahús hérlendis.
Af nýjum svissneskum myndum sem sýndar á RIFF 2025 ber einna hæst Hanami (2024), eftir Denise Fernandes, en hún hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum undanfarna mánuði. Sama er að segja um Queens (2024) eftir Klaudia Reynicke sem hefur farið sigurför um kvikmyndahátíðir heimsins.
Nýjustu myndirnar sem sýndar verða að þessu sinni eru Kvöldvaktin eða Heldin (2025) sem vakti verðskuldaða athygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á þessu ári og sama er að segja um Skjólið (La Cache, 2025) sem leikstýrð er af Lionel Baier.
Loks má nefna einkar áhugaverðar svissneskar stuttmyndir sem sýndar verða í sér flokki á RIFF 2025 þar sem efnistök eru af öllum toga og jafn ólík efni og deilur á leikvelli, flækjur kringum opin sambönd og aðgerðasinnar sem líma sig fasta koma við sögu.
Meier hefur jafnframt unnið til fjölda verðlauna fyrir stuttmyndir sínar og heimildaverk og er nú orðin fyrirmynd næstu kynslóðar kvikmyndagerðarfólks. Hún sameinar skarpt auga fyrir smáatriðum og næmt innsæi í mannlega breyskleika og skapar þannig kvikmyndir sem hreyfa við áhorfendum á sama tíma og þær varpa ljósi á samtímann. Bæði Home og Sister verða sýndar á RIFF og verða sýningarnar að teljast mikill fengur fyrir allt áhugafólk um framúrskarandi evrópska kvikmyndagerð.

Heiðursgestur RIFF 2025: Ursula Meier
Ursula Meier er meðal áhrifa- og áhugaverðustu leikstjóra svissneskrar samtímakvikmyndagerðar. Hún fæddist í Besançon í Frakklandi árið 1971, en hefur alla tíð starfað hinum megin landamæranna, og persónuleg sýn hennar sameinar frönsku og svissnesku kvikmyndahefðirnar á einstakan hátt.
Meier vakti heimsathygli með fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd, Home (2008), sem var sýnd í Cannes og hlaut lof fyrir hugmyndaríkan og næman frásagnarstíl. Með framhaldsmyndinni Sister (2012), sem hlaut Silfurbjörn á Berlínarhátíðinni, styrkti hún stöðu sína sem ein mikilvægasta rödd evrópskrar kvikmyndagerðar. Í myndum hennar má finna bæði næmni og pólitíska dýpt; þær kanna tengsl fjölskyldu, samfélags og einstaklings með blöndu af hlýju, húmor og samfélagsgagnrýni.

Upprennandi meistarar: Ramon og Silvan Zürcher
Með bakgrunn í bæði leikstjórn og handritagerð hafa Zürcher-bræðurnir þróað sérkennilega fagurfræðilegan stíl sem blandar lágstemmdri spennu við ljóðræna myndbyggingu. Kvikmyndir þeirra kanna flækjurnar í mannlegum samskiptum—hið smávægilega látbragð, ósögð átök og augnablik ókyrrðar—með nákvæmni og næmni.
Árið 2024 sendu þeir frá sér The Sparrow in the Chimney, lokakaflann í svokallaðri „dýratrílógíu“ sinni, og héldu þar áfram samstarfi við kvikmyndatökumanninn Alexander Haßkerl og tónskáldið Philipp Moll. Verk bræðranna hafa verið sýnd á hátíðum á borð við Locarno, Rotterdam og Toronto og sífellt fjölgar í hópi þeirra sem hrífast af hæglátri en um leið róttækri nálgun þeirra á frásagnarformið. Allar myndirnar þrjár í téðri dýratrílógíu verða sýndar á RIFF í ár.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram sem fyrr segir frá 25.sept. til 5.okt. og verður dagskráin í heild auglýst fljótlega.
