BRANSADAGAR
5. October — 10. October 2027
Reykjavík–staðsett mitt á milli Norður-Ameríku og Norður-Evrópu–er orðin að mikilvægum skurðpunkti þar sem upprennandi hæfileikafólk frá báðum heimsálfum kemur saman. Bransadagar RIFF byggja á þessari staðsetningu og markmið þeirra er skýrt: að bera á borð það sem stendur upp úr í íslenskri kvikmyndagerð, að stefna saman bransafólki þvert á landamæri, og ræða þær áskoranir og tækifæri sem blasa við kvikmyndagerð samtímans–frá sjónarhorni Norðursins, Heimskautasvæðisins og víðar.
Með því að slást í hópinn færðu einstakan aðgang að nokkrum af merkustu röddum í kvikmyndagerð samtímans í persónulegu umhverfi. Í meistaraspjalli mætir heimsþekkt kvikmyndagerðarfólk og tekur þátt í beinum samræðum á jafningjagrundvelli á meðan skipulagðir maður-á-mann viðskiptafundir eru hugsaðir til að opna dyr og mynda ný viðskiptatengsl. Samtöl taka mið af veruleikanum á Norðurslóðum og heimskautasvæðum og eru skipulögð í nánu samstarfi við aðila frá Grænlandi, Færeyjum, Samasvæðum og þvert á Norðurslóðir. Þátttakendur velta upp þeim málefnum sem brenna á greininni, allt frá sjálfbærni til nýrra aðferða við framleiðslu og dreifingu, í samtali við alþjóðlegt fagfólk sem skilur og þekkir umhverfið.
Hvort sem þú ert með verkefni í þróun, ert í leit að samstarfsaðilum, eða vilt skoða með gagnrýnum hætti hvert kvikmyndabransinn stefnir, þá eru Bransadagar RIFF staðurinn og stundin. Í meira en 20 ár hefur RIFF fengið nokkrar af áhrifaríkustu röddum kvikmyndalistarinnar–Miloš Forman, Jim Jarmusch, Ruben Östlund, Isabelle Huppert, Mads Mikkelsen, Claire Denis, Apichatpong Weerasethakul, og Mohsen Makhmalbaf þar á meðal–og fest Reykjavík jafnt og þétt í sessi sem ómissandi hátíðarborg og um leið Ísland sem lykilstað yfir djarfa, frumlega og óháða kvikmyndagerð.
BRANSAFAGGILDING
BASIC
Innifalið í BASIC Bransadagapassa eru:
- Pallborðsumræður
- Meistaraspjöll með heiðursgestum hátíðarinnar
- Impact pallborð: Ítarlegar pallborðsumræður sem haldnar eru eftir allar sýningar á myndum í flokknum “Önnur framtíð”
- RIFF talks: Í anda TED-talks, RIFF talks býður upp á innsýn í starf sérfræðinga í bransanum sem deila ráðum um hvernig hægt sé að hasla sér völl í greininni.
FULL
Innifalið í FULL Bransadagapassa eru:
- Hátíðarpassi: Aðgangur að öllum almennum sýningum
- Pallborðsumræður
- Meistaraspjöll með heiðursgestum hátíðarinnar
- Impact Pallborð: Ítarlegar pallborðsumræður sem haldnar eru eftir allar sýningar á myndum í flokknum „Önnur Framtíð“.
- RIFF talks: Í anda TED-talks, RIFF talks býður upp á innsýn í starf sérfræðinga í bransanum sem deila ráðum um hvernig hægt sé að hasla sér völl í greininni.
FULL FILM STUDENT
Innifalið í FULL FILM STUDENT Bransadagapassa eru:
- Hátíðarpassi: Aðgangur að öllum almennum sýningum
- Pallborðsumræður
- Meistaranáspjöll með heiðursgestum hátíðarinnar
- Impact Pallborð: Ítarlegar pallborðsumræður sem haldnar eru eftir allar sýningar á myndum í flokknum „Önnur framtíð“.
- RIFF talks: Í anda TED-talks, RIFF talks býður upp á innsýn í starf sérfræðinga í bransanum sem deila ráðum um hvernig hægt sé að hasla sér völl í greininni.
Blaðamannafaggilding
Innifalið í PRESS Bransadagapassa eru:
- Hátíðarpassi: Aðgangur að öllum almennum sýningum
- Pallborðsumræður
- Meistaranáspjöll með heiðursgestum hátíðarinnar
- Impact Pallborð: Ítarlegar pallborðsumræður sem haldnar eru eftir allar sýningar á myndum í flokknum „Önnur framtíð“.
- RIFF talks: Í anda TED-talks, RIFF talks býður upp á innsýn í starf sérfræðinga í bransanum sem deila ráðum um hvernig hægt sé að hasla sér völl í greininni.
VINNUSTOFUR Á RIFF 2027
VERK-Í-VINNSLU
Verk í vinnslu er kynning á kvikmyndaverkefnum sem eru í þróun, framleiðslu eða eftirvinnslu. Þar gefst kvikmyndagerðarfólki tækifæri til að tengjast alþjóðlegum meðframleiðendum, fjármögnunaraðilum, sölustjórum og dreifingaraðilum. Í ár eru tíu norræn og alþjóðleg verkefni, heimildarmyndir og leiknar kvikmyndir, frá Íslandi, Færeyjum, Finnlandi, Portúgal, Póllandi, Danmörku, Svíþjóð, Spáni, Kanada, Eistlandi og Ítalíu, sem eru á ólíkum stigum, allt frá fyrstu þróun til eftirvinnslu. Sjá verkefnin fyrir 2026.
NORÐURSLÓÐA-HANDRITASMIÐJAN
Norðurslóða-Handritasmiðjan er þróunarverkefni fyrir handritshöfunda og leikstjóra frá Norðurlöndum sem eru að ryðja sér til rúms og eiga það sameiginlegt að segja frá reynsluheimi fólks á norðlægum slóðum, hvort sem hún tengist náttúrunni, samfélagslegum málefnum, menningu eða pólitík. Í fyrstu útgáfu handritasmiðjunnar koma saman 10 efnilegir handritshöfundar sem vinna að 8 norrænum kvikmyndaverkefnum. Sjá verkefnin fyrir 2026.
PALLBORÐ, MEISTARASPJÖLL OG SAMRÆÐUR
Bransadagar leiða saman nokkrar af áhrifamestu röddum samtímakvikmyndagerðar í nánu umhverfi sem er sérstaklega skapað til að stuðla að raunverulegum skoðanaskiptum. Á fimm dögum færist dagskráin á milli vandlega valinna pallborðsumræðna, fágætra meistaraspjalla og samtala að sýningum loknum — og skapar þannig náið samband við helstu áhrifavalda heimsins í kvikmyndum og gerir þá aðgengilega á einlægan og mannlegan hátt. Hér tala áhrifaríkustu raddir kvikmyndalistarinnar beint til áhorfenda, án milliliða eða stigveldis.
Pallborð og samræður
Á hverju ári skipuleggja Bransadagar samtöl sem hverfast um þau málefni sem helst brenna á samtímakvikmyndagerð og bransanum í heild. Þátttakendur í pallborði endurspegla ávallt áríðandi málefni greinarinnar hverju sinni, allt frá sjálfbærni og stafrænni umbreytingu yfir í ný fjármögnunarmódel og listræna áhættu. Útgangspunkturinn er ávallt sjónarmið þeirra sem starfa við kvikmyndagerð á Norðurslóðum og á Íslandi.
Samræður færa saman kvikmyndagerðarfólk, framleiðendur, gagnrýnendur, dagskrárstjóra og sérfræðinga í greininni í persónulegu umhverfi þar sem samtalið er ávallt opið. Fyrri samtöl hafa skoðað samstarfsmöguleika milli norðlægra þjóða, hlutverk gagnrýnenda og dagskrárstjóra við mótun kvikmyndamenningar, áhrif gervigreindar á greinina, og mikilvægi sjálfbærrar framleiðslu. Fylgist með dagskránni 2027!
Meistaraspjall
Meistaraspjall gefur kost á fágætu tækifæri til að ná tali af merkustu einstaklingum í samtímakvikmyndagerð. Hvert skipti er samtal, ekki fyrirlestur, sem tryggir raunveruleg skoðanaskipti. Meðal gesta á undanförnum árum má nefna Miloš Forman, Jim Jarmusch, Mads Mikkelsen, Isabelle Huppert, Anton Corbijn, og Mohsen Makhmalbaf. Meistaraspjallsdagskráin 2026 verður kynnt um leið og heiðursgestir RIFF 2026 verða tilkynntir.
Samtöl til áhrifa
Í kjölfar valinna kvikmyndasýninga verða haldin samtöl til áhrifa, þar sem íslenskir sérfræðingar og áhorfendur kryfja til mergjar hvernig myndir taka á málefnum sem varða félagslegar og pólitískar umbreytingar. Stýrðar umræður kafa í samspil kvikmynda og samfélags og skoða hvernig kvikmyndir endurspegla veruleikann, ögra ríkjandi hugmyndum og móta skilning okkar á heiminum. Óformlegar samræður í kjölfar kvikmyndar –ávallt í persónulega samtali–minna okkur á hvers vegna kvikmyndalistin hefur annað hlutverk en bara afþreyingu. Ýmsir merkir leikstjórar hafa tekið þátt í samtölum til áhrifa, þar á meðal Óskarsverðlaunahafinn David Borenstein (Mr. Nobody Against Putin). Samtölin gefa kost á beinum samskiptum áhorfenda við listamenn sem og fagfólk, um málefnin sem heitast brenna á samtímanum.
RIFF SPJALLIÐ
Þessi röð samtalsviðburða dregur dám af TED-fyrirlestrum og byggir á stuttum kynningum á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og ungu skapandi einstaklingum. Hvert spjall felur í sér persónulega nálgun á kvikmyndagerð samtímans en ekki síður framtíðina. RIFF spjallið býður í senn upp á innsýn og innblástur bæði fyrir nemendur, listamenn á fyrstu skrefum ferilsins og reynslumeiri gesti.
TENGSLAMYNDUN OG FÉLAGSLÍF
Hittingar og móttökur
Dagskrá RIFF gefur margvísleg tækifæri á óformlegum samtölum eftir pallborðsumræður. Móttökur og spjallstundir veita tækifæri til að kynnast, deila hugmyndum og mynda tengsl í afslappaðra umhverfi. Við viljum að hver gestur fari heim með þá tilfinningu að hann hafi kynnst rétta fólkinu – og við erum ávallt tilbúin að greiða leiðina og tengja fólk saman. Nánari upplýsingar um félagslega viðburði verða kynntar þegar nær dregur hátíðinni.
VINNUSTOFUR
Ítarlega skipulögð dagskrá til að efla ungt og efnilegt listafólk. Í ár verður boðið upp á Verk í vinnslu kynningu (fyrir verkefni í leit að meðframleiðendum), undir leiðsögn Frédéric Boyer, Heimskauts-handritasmiðjan (fyrir handritshöfunda frá Norðurlöndunum heimskautasvæðinu), og Ung-Norræna hugveitan (þátttökuvettvangur fyrir ungt kvikmyndagerðarfólk).
LAND Í FÓKUS
Á hverju ári beinir RIFF kastljósinu að tilteknu landi til að kynna áhorfendur fyrir kvikmyndamenningu þess. Sýnt er úrval kvikmynda, pallborðsumræður í tengslum við sýningar ásamt fundum fagfólks og Bransamóttöku. Hér gefst íslenskum og norrænum gestum til að koma á kynnum við nýja samstarfsaðila, finna meðframleiðendur og öðlast ný sjónarhorn. Landið í fókus árið 2026 er Portúgal! Rómaðir portúgalskir kvikmyndagerðarmenn og spennandi nýjar raddir mætast í fjölbreyttu úrvali kvikmynda sem gefa innsýn í samtímakvikmyndagerð landsins.
Okkar markmið er að skapa raunveruleg tengsl. Vertu með á bransadögum RIFF í haust!

