Norðurslóða handritasmiðjan (The Arctic Script Lab) er þróunarsmiðja fyrir handritshöfunda og kvikmyndagerðarfólk frá Norðurlöndunum og Samasvæðunum sem vinna að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd eða heimildarmynd um lífið á Norðurslóðum. Á hverju ári er hópur af átta til tíu upprennandi listamönnum valinn í kjölfar opins kalls til að taka þátt í ítarlega skipulagðri smiðju þar sem bæði er kennt á staðnum og á netinu.
Handritasmiðjan felur í sér faglegan, dramatúrgískan stuðning, endurgjöf frá jafningjum, og leiðsögn frá norrænum og alþjóðlegum leiðbeinendum. Smiðjan er hugsuð til að þróa einstaklingsverkefni og byggja upp árganga af röddum úr norðrinu þar sem hver þekkir annan, deilir tenglsum og einstaklingar styðja hvern annan þvert á tungumál og landamæri.
Frekari upplýsingar og tilkynning um opið kall 2026 birtast fljótlega.