Bókabíó: Pride & Prejudice

Háskólabíó
28. september, kl 19:30

Bókabíómynd RIFF í ár er Pride and Prejudice, sem fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 2005 og nýtur enn mikilla vinsælda. Líkt og skáldsagan sem hún er byggð á hefur kvikmyndin, í leikstjórn Joe Wright, öðlast sess sem tímalaus klassík. Kvikmyndin hlaut fjórar Óskarstilnefningar, þar á meðal Keira Knightley fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Elizabeth Bennet.

Sýningin er haldin í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og formaður klúbbsins, segir frá Jane Austen: Hvernig stendur á því að verk hennar höfða til fólks enn í dag? Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og þýðandi Hroka og hleypidóma fjallar um verkið.

Gestum er boðið freyðivín við upphaf sýningar. Komdu og skálaðu með okkur fyrir einni bestu ástarsögu allra tíma – og njóttu töfra Pride and Prejudice á hvíta tjaldinu.

Vinsamlegast athugið að samtalið á millu Kristínu og Silju verður á íslensku.

3 900 kr.

Til á lager

Lýsing

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0