Meistaraspjöll

Meistaraspjall á RIFF gefur kost á fágætu tækifæri til að ná tali af merkustu einstaklingum í kvikmyndagerð.

Meistaraspjall á RIFF gefur kost á fágætu tækifæri til að ná tali af merkustu einstaklingum í samtímakvikmyndagerð. Hvert skipti er samtal, ekki fyrirlestur, sem tryggir raunveruleg skoðanaskipti. Meðal gesta í ár eru David Leitch, Kelly McCormick, Elísabet Ronalds, Erik Hemmendorff, Amanda Kernell, Miguel Eek og João Pedro Rodrigues.

gettyimages 461509842 612x612 1

Leggja grunninn: Kvikmyndaframleiðsla með Erik Hemmendorff

Hvert er raunverulegt hlutverk framleiðandans þegar skapandi samstarf stendur árum saman og verkefnin verða sífellt umfangsmeiri? Erik Hemmendorff ræðir framleiðslu sem skapandi starfsgrein með hliðsjón af langvarandi samstarfi sínu við leikstjórann Ruben Östlund og þróun sífellt metnaðarfyllri alþjóðlegra kvikmyndaverkefna. Hann fjallar meðal annars um þróun hugmynda, hvernig framleiðandi ögrar sýn leikstjórans og verndar hana, fjármagnar áhættusöm verkefni, byggir upp alþjóðlegt samstarf, mótar leikaraval og framleiðslustefnu og viðheldur farsælu samstarfi við gerð afar ólíkra mynda. Í stað þess að beina sjónum eingöngu að verkum eins leikstjóra kannar meistaraspjallið hlutverk framleiðandans sem virks, skapandi samstarfsaðila, og þá möguleika sem langvarandi samstarf getur skapað.

Meistaraspjall með Amöndu Kernell

Amanda Kernell, sem RIFF heiðrar í ár sem Upprennandi meistara, er ein sérstæðasta rödd norrænnar kvikmyndagerðar um þessar mundir. Hún fæddist í Norður-Svíþjóð, dóttir sænskrar móður og samísks föður, og umbreytir persónulegri og menningarlegri reynslu í skáldskap sem nær langt út fyrir hið sjálfsævisögulega. Að lokinni sýningu á Brace Your Heart (Frost í hjarta) tekur Kernell þátt í samtali um birtingarmyndir, sjálfsmynd og tilfinninguna fyrir því að tilheyra — og um það sem fjölskyldur og samfélög kjósa að ræða og það sem látið er ósagt. Hún ræðir jafnframt nálgun sína að leikurum, landslagi og sjónarhorni og hvernig minningar móta kvikmyndir hennar.

amanda kernell 14154 2
miguel eek 13491

Tólf ár með Amílcar: Form heimildarmyndarinnar, safnefnið og hin langa leið að kvikmynd

Að lokinni sýningu á Amílcar lítur leikstjórinn Miguel Eek um öxl og ræðir hina skapandi og hagnýtu vegferð að baki myndar sem var meira en áratug í vinnslu. Með kvikmyndina að útgangspunkti verður kannað hvernig form heimildarmyndar getur tekið á sig mynd í gegnum rannsóknir, vinnu með safnefni, skrif og langvarandi aðgang að viðfangsefninu; hvernig kvikmyndagerðarmaður nálgast pólitískt eldfimt efni án þess að smætta sögulega persónu niður í táknmynd og hvernig verkefni umbreytist á löngum tíma við þróun, fjármögnun, samstarf og klippingu. Meistaraspjallið fléttar saman listrænu ferli og veruleika sjálfstæðrar heimildarmyndagerðar og veitir innsýn í hvað felst í því að helga kvikmynd tólf ár, og halda allan þann tíma áfram að leita að rétta kvikmyndaforminu.

Langanir án afsakana

Að lokinni sýningu á The Ornithologist kemur leikstjórinn João Pedro Rodrigues fram á RIFF í sérstöku meistaraspjalli um höfundarverk sem hefur víkkað út möguleika hinsegin kvikmyndagerðar. Rodrigues er einn mikilvægasti kvikmyndagerðarmaður Portúgals um þessar mundir og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir beitta nálgun, dirfsku og óhefta listræna sýn. Í kvikmyndum hans eiga hinsegin langanir, erótík, helgisiðir og fantasía milliliðalaust samtal við hinn sýnilega veruleika. Kvikmyndagerð hans ferðast óhindrað milli næmrar, heimildarmiðaðrar athugunar og goðsagnar, og gerir líkama, sjálfsmyndir og landslag að vettvangi umbreytinga. Með Rodrigues verður João Rui Guerra da Mata, lífsförunautur hans og náinn samstarfsmaður um árabil, en þeir hafa leikstýrt nokkrum kvikmyndum saman.

joao pedro rodrigues 22484 joao pedro rodrigues eduardomartins 00003 scaled

Hjartað í hasarnum með David Leitch, Kelly McCormick og Elísabet Ronalds

Hvernig er hasaratriði í samtímakvikmynd í raun byggt upp? Í þessu meistaraspjalli mætast sjónarhorn leikstjórans, framleiðandans og klipparans og ferlið er krufið frá fyrstu hugmynd að endanlegri útgáfu. Með sýningu valinna brota – þar á meðal, með fyrirvara, atriða úr nýjustu mynd þeirra – How to Rob a Bank – rekja fyrirlesararnir hvað er útfært fyrir tökur, hverju er breytt á tökustað og hvaða úrlausnir verða til við klippingu. Jafnframt verður skoðað hvernig hrynjandi, húmor, persónusköpun og sjónarspil eru fléttuð saman í áhrifaríka heild. Meistaraspjallið veitir einstaka innsýn í gerð hasarmynda sem samvinnulist, þar sem ólíkar skapandi greinar vinna saman, fremur en verk eins fagteymis eða stakt áhættuatriði.

Share this post

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0