Það er hægt að gera meira en horfa á kvikmyndir á RIFF! Á Litla sviðinu í Háskólabíó fara fram fjölbreyttir viðburðir sem þú vilt ekki missa af! Sjáðu hvað er í boði:

Kvöld að hætti Marty Supreme
25. september, kl. 20:00
Gríptu spaða og taktu þátt í fjörugu borðtennismóti þar sem spilað er hringinn í kringum borðið. Evelina Richter, starfsnemi hjá RIFF, sér um að halda uppi fjörinu og tryggja góða stemningu.

Fallax by Huldufugl – fyrsta íslenska VR myndin
27. og 28. september, kl. 17:00
Leikstjóri: Owen Hindley
Upplifðu Fallax, fyrstu íslensku sýndarveruleika kvikmyndina, eftir leikstjórann Owen Hindley og skapandi stúdíóið Huldufugl, í Háskólabíói.
Sérstakir XR-stólar og búnaður frá SagaVR leyfa áhorfendum að sökkva inn í sýndarheim myndarinnar.
Myndin verður sýnd í XR stólum tvisvar á hálftíma fresti – Skráðu þig í miðasölu á riff.is
Viðburðurinn hentar ekki fyrir yngri en 12 ára.
Fangi flýr út í íslensku náttúruna. Vinir fangans hverfa á undarlegan hátt og fanginn dregst inn í heim þar sem tíminn tifar öðruvísi og náttúran tekur á sig mannsmynd. Kvikuð mynd þar sem karakterar og náttúruöfl eru túlkuð af loftfimleikurum. Fallax er fyrsta íslenska myndin sem er gerð innan sýndarveruleika.

Kvikmyndanördakviss Nexus
Mældu þig við aðra kvikmyndanörda í fjörugu barsvari undir stjórn Markúsar Efraím. Hér reynir á þekkingu á öllu frá gleymdum meistaraverkum og sérviskulegum aukahlutverkum til kvikmyndatónlistar og óvæntra smáatriða. Glæsilegir vinningar frá Nexus og sérstakt tilboð á bíóbarnum í boði fyrir þátttakendur.




