Í flokknum FYRIR OPNU HAFI gefur að líta úrval kvikmynda sem hafa vakið sérstaka athygli á kvikmyndahátíðum víða um heim á undanförnum mánuðum. Þetta eru myndir sem hafa náð að hreyfa við áhorfendum með eftirminnilegum hætti, oft gerðar af færustu og virtustu kvikmyndagerðarmönnum samtímans.
Beloved / Ástkær / Kjærast

Leikstjóri: Erik Poppe
Asle og Gerd finna hamingjuna sem fjölskylda ásamt syni sínum í litlu sjávarþorpi. Þegar fram líða stundir eykst fjarvera sjómannsins Asle og einvera Gerd með drenginn. Hversu mikla fjarlægð þolir ástríkt samband áður en strengurinn slitnar?
Bitter Christmas / Biturleg jól / Amarga Navidad
Leikstjóri: Pedro Almodóvar
Biturleg jól segir frá Elsu, auglýsingaleikstjóra sem missir móður sína í jólafríinu. Hún vinnur linnulaust og gefur sér, án þess að gera sér grein fyrir því, engan tíma til að syrgja móður sína, en ákveður loks að fara til Lanzarote ásamt vinkonu sinni, Patriciu, sem þarf einnig að komast burt. Saga þeirra fléttast saman við sögu handritshöfundarins og kvikmyndaleikstjórans og kannar hvernig líf og skáldskapur tengjast órjúfanlega – stundum með sársaukafullum afleiðingum.

Fatherland / Föðurlandið

Leikstjóri: Paweł Pawlikowski
Árið 1949 leggja þýski rithöfundurinn Thomas Mann og dóttir hans Erika upp í bílferð um Þýskaland í rústum, frá Frankfurt, sem er undir stjórn Bandaríkjanna, til Weimar, sem er undir stjórn Sovétríkjanna. Myndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og uppskar hún verðlaun á hátíðinni Cannes síðastliðið vor. Leikstjórinn er heimsþekktur og var gestur RIFF árið 2005.
Nightborn / Barn næturinnar / Yön Lapsi
Leikstjóri: Hanna Bergholm
Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni.

Paper Tiger / Pappírstígur

Leikstjóri: James Gray
Í þessu áhrifamikla og ákafa drama James Gray flækjast tveir bræður í ráðabrugg sem reynist of gott til að vera satt. Þegar þeir reyna að fóta sig í hættulegum heimi rússnesku mafíunnar fara fjölskylduböndin að trosna, með afdrifaríkum afleiðingum.
Queen at Sea / Drottning í ólgusjó
Leikstjóri: Lance Hammer
Amanda og Martin, stjúpfaðir hennar, standa frammi fyrir siðferðislegri spurningu og eru ekki á eitt sátt um svarið. Móðir Amöndu, Leslie, þjáist að heilabilun og verður sífellt meira ósjálfbjarga. Á barn, maki eða dvalarheimili að taka af ákvarðanir fyrir sjúklinginn hér eftir? Eftir því stjúpfeðginin standa frammi fyrir sífellt erfiðari ákvörðunum missa þau jafnt og þétt tökin á afleiðingunum.

Red Rocks / Rauðir klettar / Les Roches Rouges

Leikstjóri: Bruno Dumont
Á frönsku Rivíerunni etja tveir barnahópar kappi í hættulegum klettastökkum. Géo, sem er vart orðinn fimm ára, uppgötvar á einu sumri heim þar sem vinátta fléttast saman við samkeppni og fyrstu tilfinningar hjartans vakna í töfrandi landslagi Miðjarðarhafsins.
Teenage Sex and Death at Camp Miasma / Dráp og dónaskapur í Camp Miasma
Leikstjóri: Jane Schoenbrun
Eftir margra ára hraðsoðnar framhaldsmyndir og dvínandi áhuga er Camp Miasma-myndaserían falin ungum og metnaðarfullum leikstjóra sem einsetur sér að blása nýju lífi í hana. Þegar hún leitar uppi dularfulla og einræna aðalleikkonu fyrstu myndarinnar dragast konurnar tvær inn í blóðugt víti langana, skelfingar og ofskynjana.

The Loneliest Man in Town / Sá mest einmana í bænum

Leikstjórar: Tizza Covi, Rainier Frimmel
Myndin fjallar um tónlistarmanninn Al Cook, sem býr einsamall í íbúð fullri af minningum, hljómplötum, bókum og öðrum munum sem fylgja löngu lífi. Þegar ákveðið er að rífa húsið horfist hann í augu við að heimurinn sem hann byggði líf sitt á er að hverfa. Myndin er fyrst og fremst ljóðræn persónusaga um einmanaleika, missi, minningar, tónlist og það að þurfa að sleppa takinu á fortíðinni.
Wicker / Bast
Leikstjórar: Alex Huston Fischer og Eleanor Wilson
Í útjaðri sjávarþorps býr kona sem stundar sjósókn; daunill, einhleyp og stöðugt hædd af nágrönnum sínum. Dag einn fær hún nóg og lætur hún smíða sér eiginmann úr tágum. Brátt logar íhaldssamt þorpið stafna á milli og hinn óhefðbundni ráðahagur vekur upp hneykslan, öfund og glundroða.

Sigurvegarinn verður tilkynntur við verðlaunaafhendingu á lokahátíð RIFF síðdegis laugardaginn 3. október kl. 17:00 í sal 3 í Háskólabíói.




