
Double Feature: Twin Peaks and Wild at Heart + Sigurjón Sighvatsson
Háskólabíó
25. september, kl 20:30 (8:30pm)
Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá stofnun hins goðsagnakennda framleiðslufyrirtækis Propaganda Films býður RIFF til einstakrar tvennusýningar á tveimur tímamótaverkum David Lynch: hinum 94 mínútna langa upphafsþætti Twin Peaks og Gullpálmaverðlaunamyndinni Wild at Heart.
Wild at Heart verður sýnd í glæsilegri nýrri 4K-endurvinnslu, unninni úr upprunalegu 35 mm filmunum undir handleiðslu kvikmyndatökustjórans Frederick Elmes og með samþykki David Lynch Family Trust.
Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson verður viðstaddur sýninguna og gefst gestum því einstakt tækifæri til að upplifa þessi áhrifamiklu verk í návígi við einn af lykilmönnum þeirra.
Teenage Sex and Death at Camp Miasma
Háskólabíó
25. september, kl 22:00 (10:00pm)
Leikstjóri: Jane Schoenbrun
Eftir margra ára hraðsoðnar framhaldsmyndir og dvínandi áhuga er Camp Miasma-myndaserían falin ungum og metnaðarfullum leikstjóra sem einsetur sér að blása nýju lífi í hana. Þegar hún leitar uppi dularfulla og einræna aðalleikkonu fyrstu myndarinnar dragast konurnar tvær inn í blóðugt víti langana, skelfingar og ofskynjana. Stórleikkonan Gillian Anderson, stjarna tíunda áratugarins, fer á kostum í mynd sem ekki má missa af.


Club Kid
Háskólabíó
25. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Jordan Firstman
Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska. Ein af þeim myndum sem vakti hvað mesta athygli á Cannes og A24 vann slaginn um alþjóðlega sýningarréttinn.
Nightborn
Háskólabíó
25. september, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjóri: Hanna Bergholm
Barn næturinnar í leikstjórn Hanna Bergholm keppir í flokknum Fyrir opnu hafi á RIFF í ár. Með aðalhlutverk fara Seidi Haarla og Rupert Grint. Haarla verður viðstödd sýningar og svarar spurningum að henni lokinni.
Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni.


Amílcar + Q&A
Háskólabíó
25. september, kl 19:45 (7:45pm)
Leikstjóri myndarinnar, Miguel Eek, tekur þátt í Spurt & svarað.
Hann var í senn búfræðingur, skáld og byltingarmaður drifinn áfram af hugsjón um betri heim. Engin furða að Amílcar Cabral, sem leiddi andspyrnuna gegn nýlenduherrum Gíneu-Bissá og Grænhöfðaeyja allt þar til hann var myrtur árið 1973, er oft nefndur hinn afríski Che Guevara. Hér er brugðið upp margslunginni svipmynd þar sem mannréttindi, metnaður, útópía, stríð, ástríður og svik koma við sögu.
Atomic Blonde + Q&A
Háskólabíó
25. september, kl 17:20 (5:20pm)
David Leitch og Kelly McCormick taka þátt í Spurt & svarað.
Leynilögreglumaður MI6 er sendur til Berlínar á tímum kalda stríðsins til að rannsaka morð á samstarfsmanni sínum og endurheimta lista yfir týnda tvöfalda njósnara. Stórkostleg frammistaða Charlize Theron og stórfenglegar bardagasenur undirstrika sjónræna, áhrifamikla og stílhreina upplifun með neonáferð í kvikmyndatökunni og nostalgískri tónlist frá níunda áratugnum.


HEX
Háskólabíó
25. september, kl 15:15 (3:15pm)
Leikstjóri: Maja Holand
Með hina alræmdu norsku svartmálmssenu í bakgrunni fylgir HEX þeim Nikoline, Victoriu og Johönnu eftir þegar þær stofna hljómsveitina Witch Club Satan án þess að kunna á nokkurt hljóðfæri. Næstu þrjú árin helga þær sig því að verða bæði nornir og tónlistarkonur og nýta svartmálminn sem farveg fyrir óbeislaðan kvenlegan kraft uns reyna fer á samheldnina, sannfæringuna og hugmyndina um frelsi. Hvað er að vera frjáls kona?
Það sem hverfur (La Pietà)
Háskólabíó
25. september, kl 15:00 (3:00pm)
Leikstjórar: Pepe Andreu, Rafa Molés
Fyrir rúmri öld settust Flosi Björnsson og átta systkini hans að undir Vatnajökli og helguðu líf sitt jöklinum. Þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson snýr aftur að lokuðum bænum þar sem hann dvaldi sumarlangt í æsku, vekur hann rödd Flosa til lífs á ný, á meðan ísinn sem brestur yrkir sálumessu fyrir veröld sem er að hverfa.


Alþjóðlegar stuttmyndir International Shorts
Háskólabíó
25. september, kl 19:00 (7:00pm)
Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.
Heat + Q&A
Háskólabíó
25. september, kl 17:30 (5:30pm)
Leikstjóri: Jacqueline Zünd
Loftslagsbreytingar raska lífi fólks og samböndum – ekki síst við Persaflóa, þar sem hitinn getur farið yfir 50°C og samfélagið skiptist milli þeirra fáu sem hafa efni á að verja sig gegn hitanum og innflytjenda sem eiga engra annarra kosta völ en að þola hann til að hafa í sig og á.


Arctic Circle of Lust + Intro
Háskólabíó
25. september, kl 22:00 (10:00pm)
Leikstjóri: Markku Heikkinen
Undir norðlægum himni lærir par að fóta sig í nýju sambandi. Hinn fimmtugi Petri hefur horfst í augu við tvíkynhneigð sína og finnur þörf fyrir að fylgja löngunum sínum eftir, á meðan Anu fer að efast um eigin væntingar til sambandsins.




