0%
Riff Logo

Dagur 4 á RIFF 2026

Allt frá náttfatapartýi fyrir þau yngstu til áhugaverðra meistaraspjalla. Fjölbreytt dagskrá og eitthvað fyrir alla!
paddington still hi res 250 3090573 schermafbeelding 2026 08 18 133058

Náttfatapartý: Paddington

Háskólabíó

27. september, kl 10:30 (10:30am)

Vegna fjölda fyrirspurna höfum við bætt við aukasýningu á Paddington náttfatapartýinu í öðrum sal, þar sem selst hefur upp á upprunalega viðburðinn! Salurinn verður ekki skreyttur á sama hátt og stóri salurinn, en það er ennþá frjálst að mæta í náttfötum og taka þátt í stemningunni í húsinu. Leynigesturinn verður á sínum stað í anddyrinu þegar húsið opnar, ásamt tilboði á morgunvænu góðgæti í sjoppunni. Vegna þessa breytinga verða hefðbundin verð á miðunum. Sýnd með íslensku tali.

Amílcar + Masterclass with Miguel Eek

Háskólabíó
27. september, kl 13:40 (1:40pm)

Að lokinni sýningu á Amílcar lítur leikstjórinn Miguel Eek um öxl og ræðir hina skapandi og hagnýtu vegferð að baki myndar sem var meira en áratug í vinnslu.

Hann var í senn búfræðingur, skáld og byltingarmaður drifinn áfram af hugsjón um betri heim. Engin furða að Amílcar Cabral, sem leiddi andspyrnuna gegn nýlenduherrum Gíneu-Bissá og Grænhöfðaeyja allt þar til hann var myrtur árið 1973, er oft nefndur hinn afríski Che Guevara. Hér er brugðið upp margslunginni svipmynd þar sem mannréttindi, metnaður, útópía, stríð, ástríður og svik koma við sögu.

AMILCAR
fatherland still hi res 226 3113271 fatherland still 3 agatagrzybowska

Fatherland

Háskólabíó
27. september, kl 16:30 (4:30pm)

Leikstjóri: Pawel Pawlikowski

The Subtitles are in Icelandic.

Árið 1949 leggja þýski rithöfundurinn Thomas Mann og dóttir hans Erika upp í bílferð um Þýskaland í rústum, frá Frankfurt, sem er undir stjórn Bandaríkjanna, til Weimar, sem er undir stjórn Sovétríkjanna.

Skateboarding Is Not For Girls

Háskólabíó
27. september, kl 13:30 (1:30pm)

Leikstjóri: Dina Duma

Þegar sú íhaldssama hefð að selja stúlkur í hjónaband er lögð til sem lausn á fjárhagsörðugleikum fjölskyldunnar, stendur Adela skyndilega á krossgötum. Hún kynnist framandi veröld, föst á milli hefða fortíðar og loforða nútímans.

skateboarding is not for girls still hi res 100 3029905 skate stills 3996x2160 20241115 1
ride of a lifetime

Ævintýri á hestbaki &
Vegur 75 um Tröllaskarð– Álög Grímu + Q&A

Háskólabíó
26. september, kl 17:05 (5:05pm)

Háskólabíó
27. september, kl 11:00 (11:00am)

Leikstjóri: Árni Gunnarsson 

Árni Gunnarsson tekur þátt í Spurt & svarað.

Ævintýri á hestbaki segir frá Þórgunni Þórarinsdóttur, ungri hestakonu frá Norðurlandi sem hefur helgað íslenska hestinum líf sitt. Heimildarmyndin var tekin upp á fimm ára tímabili og fylgir Þórgunni frá því hún var óþekktur fimmtán ára knapi í Skagafirði þar til hún keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss árið 2025, ásamt ástsælum hesti sínum, Djarfi frá Flatatungu.

Vegur 75 um tröllaskarð – álög Grímu: Í Hegranesi á Norðurlandi hefur lengi verið talið að leita þurfi samþykkis hulinna afla áður en ráðist er í framkvæmdir. Árið 1978 komst Vegagerðin að samkomulagi á miðilsfundi við Grímu, konu sem hafði búið á svæðinu um 500 árum fyrr. Gegn því að vegstæðinu um Tröllaskarð yrði breytt lofaði hún að engin alvarleg slys yrðu á veginum. En stóð Gríma við loforð sitt? Og hefur huldufólkið enn eitthvað um vegagerð að segja?

The Siege of Paradise + Impact Talk

Háskólabíó
27. september, kl 16:40 (4:40pm)

Leikstjóri: Gar O’Rourke

The Impact Talk will be held in Icelandic.

Tæplega þrjú þúsund íbúar þurfa að þola ágang fjögurra milljóna ferðamanna ár hvert í strandbænum Cinque Terre á Ítalíu. Við fylgjumst með sex einstaklingum og afdrifum þeirra eitt sumarið í grátbroslegri sögu af ferðamannaparadís sem er að kikna undan ferðamennsku sem drifin er áfram að síbylju samfélagsmiðla.

2062091
amarga navidad

Amarga Navidad

Háskólabíó
27. september, kl 18:30 (6:30pm)

Leikstjóri: Pedro Almodóvar

Subtitles will be in icelandic

BITTER CHRISTMAS segir frá Elsu, auglýsingaleikstjóra sem missir móður sína í jólafríinu. Hún vinnur linnulaust og gefur sér, án þess að gera sér grein fyrir því, engan tíma til að syrgja móður sína, en ákveður loks að fara til Lanzarote ásamt vinkonu sinni, Patriciu, sem þarf einnig að komast burt. Saga þeirra fléttast saman við sögu handritshöfundarins og kvikmyndaleikstjórans og kannar hvernig líf og skáldskapur tengjast órjúfanlega – stundum með sársaukafullum afleiðingum.

Arctic Circle of Lust + Q&A

Háskólabíó
27. september, kl 18:15 (6:15am)

Leikstjóri: Markku Heikkinen

Leikstjóri myndarinnar tekur þátt í Spurt og svarað.

Undir norðlægum himni lærir par að fóta sig í nýju sambandi. Hinn fimmtugi Petri hefur horfst í augu við tvíkynhneigð sína og finnur þörf fyrir að fylgja löngunum sínum eftir, á meðan Anu fer að efast um eigin væntingar til sambandsins.

arctic circle of lust still hi res 253 3091997 arctic circle of lust 1
dua

Dua

Háskólabíó
27. september, kl 20:45 (8:45pm)

Leikstjóri: Blerta Basholli

Stríð vofir yfir í Pristínu, Kosovo, seint á tíunda áratugnum. Hin 13 ára Dua leitast eftir að tilheyra í samfélaginu og eigin líka á uppbrotartímum. Eftir áfall í samfélaginu verður hún sjálf skotmark en óttalaus stelpa, Maki, dregur hana með sér í óvænta mótspyrnu.

Providence and the Guitar

Háskólabíó
27. september, kl 15:20 (3:20pm)

Leikstjóri: João Nicolau

Leikstjóri myndarinnar tekur þátt í Spurt og svarað.

Endur fyrir löngu flakka farandlistamennirnir Léon og Elvira Berthelini milli bæja til að hafa í sig og á. Þau mæta margvíslegum áskorunum og misjafnlega vingjarnlegu heimafólki, en málin vandast fyrst þegar óvænt bölvun sendir þau fram tímann til 21. aldarinnar þar sem framtíð tiltekinnar rokksveitar – og um leið samfélagsins alls – er undir.

2068481
La Belle Annee

La Belle Année + Q&A

Háskólabíó
27. september, kl 13:15 (1:15pm)

Leikstjóri myndarinnar, Angelica Ruffier Ballot, tekur þátt í Spurt og svarað.

Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur reynir kona ein að gera kvikmynd um stormasama fortíð sína þar sem ýmis áföll í æsku koma við sögu. Án handrits velur hún leikara og leitar að tökustöðum, en verður svo fyrir bíl í miðju framleiðsluferlinu. Þegar áformin um kvikmyndina hrynja sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig verða að segja og nær loks aftur tökum á eigin lífi.

Nemasamkeppni + Q&A

Háskólabíó
27. september

Nemasamkeppni Icelandic Student Shorts kl 13:45 

Alþjóðlegar stuttmyndir III International Shorts III  1:45pm

Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.

icelandic shorts
chronovisor still hi res 21 2974085 chrono still 1 1

Chronovisor

Háskólabíó
27. september, kl 21:00 (9:00pm)

Leikstjórar: Jack Auen, Kevin Walker

Beatrice er einræn, frönsk fræðikona sem sogast inn í leyndardómsfullan heim í leit sinni að lausn gátunnar um einskonar myndavél, smíðaða af leynireglu Benediktsmunka, sem getur fangað myndir af liðnum tíma. Fljótlega kemur í ljós að sumir eru reiðubúnir að verja leyndardóminn með öllum tiltækum ráðum í þessari sagnfræðilegu ráðgátu.

Bræður og systir

Háskólabíó
27. september, kl 11:15 (11:15am)

Leikstjóri: Teresa Villaverde

Lissabon um miðjan tíunda áratuginn. María, João og Mário búa saman, án þess að velta framtíðinni – eða jafnvel líðandi stundu – mikið fyrir sér. Þau elska hvert annað, en einn daginn skilja leiðir þeirra. Þegar María þarf á hjálp þeirra að halda koma systkinin þrjú aftur saman – en því miður aðeins of seint.

two brothers my sister still hi res 80 3126734 maria luzes 1
once upon a time in harlem still hi res 193 3081238 once upon a time in harlem still 1 2

Once Upon a Time in Harlem

Háskólabíó
27. september, kl 22:00 (10:00pm)

Leikstjórar: William Greaves, David Greaves

Áratug eftir dauða sinn kemur kvikmyndagerðarmaðurinn William Greaves með sína síðustu óvæntu uppákomu: myndskeið af því sem hann taldi mikilvægasta atburðinn sem hann hefði nokkurn tímann tekið upp – samkomu sem hann skipulagði árið 1972 fyrir eftirlifandi persónur Harlem-endurreisnarinnar.

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0