
Hinsta ferðin á K2 + Q&A
Háskólabíó
4. október, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjóri: Amir Bar-Lev
Vegna gífurlegrar eftirspurnar verður aukasýning á opnunarmynd RIFF 2026, Hinsta ferðin á K2 (The Last First: Winter K2) sunnudaginn 4. október kl. 19:30 í Hátíðarsal Háskólabíós. Eftir sýninguna fara fram umræður sem Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir og útivistarkappi, og pólfararnir og háfjallaklifrararnir Vilborg Arna Gissurardóttir og Haraldur Örn Ólafsson taka þátt í.
Amir Bar-Lev segir flókna, átakanlega og áhrifamikla sögu sem varpar ljósi á heim öfgakenndrar fjallamennsku og þá menningu sem þar er að taka breytingum. Myndin fjallar um leiðangurinn árið 2021, þegar fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson frá Íslandi og feðgarnir Ali og Sajid Sadpara frá Pakistan héldu af stað í þeim tilgangi að verða fyrstir til að klífa K2 að vetri til.
Bitter Christmas
Háskólabíó
4. október, kl 17:40 (5:40pm)
Leikstjóri: Pedro Almodóvar
BITTER CHRISTMAS segir frá Elsu, auglýsingaleikstjóra sem missir móður sína í jólafríinu. Hún vinnur linnulaust og gefur sér, án þess að gera sér grein fyrir því, engan tíma til að syrgja móður sína, en ákveður loks að fara til Lanzarote ásamt vinkonu sinni, Patriciu, sem þarf einnig að komast burt. Saga þeirra fléttast saman við sögu handritshöfundarins og kvikmyndaleikstjórans og kannar hvernig líf og skáldskapur tengjast órjúfanlega – stundum með sársaukafullum afleiðingum.


Fatherland
Háskólabíó
4. október, kl 17:40 (5:40pm)
Leikstjóri: Paweł Pawlikowski
Árið 1949 leggja þýski rithöfundurinn Thomas Mann og dóttir hans Erika upp í bílferð um Þýskaland í rústum, frá Frankfurt, sem er undir stjórn Bandaríkjanna, til Weimar, sem er undir stjórn Sovétríkjanna.
Beloved
Háskólabíó
4. október, kl 13:00 (1:00pm)
Leikstjóri: Erik Poppe
Asle og Gerd finna hamingjuna sem fjölskylda ásamt syni sínum í litlu sjávarþorpi. Þegar fram líða stundir eykst fjarvera sjómannsins Asle og einvera Gerd með drenginn. Hversu mikla fjarlægð þolir ástríkt samband áður en strengurinn slitnar?


Queen at Sea
Háskólabíó
4. október, kl 15:15 (3:15pm)
Leikstjóri: Lance Hammer
Amanda og Martin, stjúpfaðir hennar, standa frammi fyrir siðferðislegri spurningu og eru ekki á eitt sátt um svarið. Móðir Amöndu, Leslie, þjáist að heilabilun og verður sífellt meira ósjálfbjarga. Á barn, maki eða dvalarheimili að taka af ákvarðanir fyrir sjúklinginn hér eftir? Eftir því stjúpfeðginin standa frammi fyrir sífellt erfiðari ákvörðunum missa þau jafnt og þétt tökin á afleiðingunum. Juliette Binoche fer með aðalhlutverkið.
Lucy Lost
Háskólabíó
4. október, kl 11:00 (11:00am)
Leikstjóri: Olivier Clerty
Á Scilly-eyjum árið 1915 vex Lucy úr grasi hjá nánu samfélagi sjómanna, en sjálf man hún lítið úr fortíð sinni. Á meðan fyrri heimstyrjöldin geisar kynnist Lucy dularfullri stelpur sem hjálpar henni að afhjúpa fortíð sína og finna sinn stað í tilverunni.


Hex + Q&A
Háskólabíó
4. október, kl. 16:45 (4:45pm)
Leikstjóri: Maja Holand
Leikstjóri tekur þátt í Spurt & svarað.
Með hina alræmdu norsku svartmálmssenu í bakgrunni fylgir HEX þeim Nikoline, Victoriu og Johönnu eftir þegar þær stofna hljómsveitina Witch Club Satan án þess að kunna á nokkurt hljóðfæri. Næstu þrjú árin helga þær sig því að verða bæði nornir og tónlistarkonur og nýta svartmálminn sem farveg fyrir óbeislaðan kvenlegan kraft uns reyna fer á samheldnina, sannfæringuna og hugmyndina um frelsi. Hvað er að vera frjáls kona?
Red Rocks
Háskólabíó
4. október, kl 15:20 (3:20pm)
Leikstjóri: Bruno Dumont
Á frönsku Rivíerunni etja tveir barnahópar kappi í hættulegum klettastökkum. Géo, sem er vart orðinn fimm ára, uppgötvar á einu sumri heim þar sem vinátta fléttast saman við samkeppni og fyrstu tilfinningar hjartans vakna í töfrandi landslagi Miðjarðarhafsins.


Sameblod
Háskólabíó
4. október, kl 17:15 (5:15pm)
Leikstjóri Director: Amanda Kernell
Elle Marja, 14 ára, er samísk stúlka sem sinnir hreindýrahirðingu. Í heimavistarskólanum verður hún fyrir kynþáttafordómum og þarf að gangast undir kynþáttalíffræðilegar rannsóknir, eins og tíðkuðust á fjórða áratugnum. Hún lætur sig dreyma um annað líf, en til að öðlast það þarf hún að afneita sjálfri sér, verða einhver önnur og slíta öll tengsl við fjölskyldu sína og menningu.
Icelandic Student Shorts
Háskólabíó
4. október, kl 13:15 (1:15pm)
Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.


Pulp: What Do You Do for an Encore?
Háskólabíó
4. október, kl 21:45 (9:45pm)
Myndin er spennandi sambland af stórbrotnasta sjónarspili sem sviðsett var fyrir stærstu tónleika Pulp til þessa, hlutum frá alþjóðlegum tónleikaferðalögum sveitarinnar í tilefni plötunnar More, fyrstu plötu Pulp í 24 ár og fjögurra áratuga litríku og áður óséðu safnefni.
Tin Castle
Háskólabíó
4. október, kl 11:00 (11:00am)
Leikstjóri Director: Alexander Murphy
Við löngu gleymdan veg býr O’Reilly-fjölskyldan í hrörlegu hjólhýsi sem stendur eitt eins og kastali á víðáttumiklum engjum. Þar taka Pa’, Lisa og tíu börn þeirra á við árstíðirnar, erfingjar lífshátta sem eru að líða undir lok. Þegar fjölskyldunni er hótað útburði standa þau fast á hefðarrétti sínum og veita mótspyrnu – en hversu lengi enn?


A Day in the Life of Jo: Chapter Phaedra
Háskólabíó
4. október, kl. 19:10 (7:10pm)
Leikstjóri Director: Jacqueline Lentzou
Myndin fylgir hinni 15 ára Jo á degi sem virðist hversdagslegur en verður að djúpri sjálfsuppgötvun. Heillandi söngur Phaedru vekur hjá henni nýjar tilfinningar á meðan draumkenndar minningar, sambandið við skapstóra móður og óvæntur harmleikur fléttast saman í ljóðræna sögu um ást, missi og mörkin milli lífs og dauða.
The Visitor
Háskólabíó
4. október, kl. 19:00 (7:00pm)
Leikstjóri Director: Vytautas Katkus
Sumarið er á enda. Danielius, maður á fertugsaldri, snýr aftur í heimabæ sinn til að selja íbúð foreldra sinna. Þar sem ekkert rekur á eftir honum endurnýjar hann kynni sín af fólkinu og bænum sem hann tilheyrir ekki lengur. Um leið þarf hann að horfast í augu við kyrrláta en áleitna einsemd.


Arctic Circle of Lust
Háskólabíó
4. október, kl. 12:45 (12:45pm)
Leikstjóri Director: Markku Heikkinen
Undir norðlægum himni lærir par að fóta sig í nýju sambandi. Hinn fimmtugi Petri hefur horfst í augu við tvíkynhneigð sína og finnur þörf fyrir að fylgja löngunum sínum eftir, á meðan Anu fer að efast um eigin væntingar til sambandsins.
A River’s Gaze
Háskólabíó
4. október, kl. 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri Director: Andreaa Cristina Borțun
Lavinia er einstæð móðir í fátæku rúmensku þorpi sem reynir að byggja upp betra líf fyrir sig og 13 ára gamlan son sinn. Hún er hvatvís, fljót að misskilja aðstæður, óviss um hvernig hún eigi að tjá ást sína og á erfitt með að gefa syni sínum það sem hann þarfnast. Þegar hann stendur á þröskuldi unglingsáranna reynir á tengsl þeirra yfir fjórar árstíðir.


Two Times João Liberada
Háskólabíó
4. október, kl. 11:15 (11:15am)
Leikstjóri: Paula Tomás Marques
João leikur í ævisögulegri kvikmynd um Liberödu, manneskju sem samræmdist ekki hefðbundnum kynjaviðmiðum og var ofsótt af rannsóknarréttinum. Þegar leikstjóri myndarinnar lamast með dularfullum hætti sækja óhugnanlegir draumar á João, sem á í erfiðleikum með að heiðra sögu Liberödu. Myndin er fyrsta leikna kvikmynd Paula Tomás Marques í fullri lengd, en hún er rísandi nafn nýrrar kynslóðar portúgalskra kvikmyndagerðarmanna. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín.
The Siege of Paradise
Háskólabíó
4. október, kl. 14:50 (2:50pm)
Leikstjóri: Gar O’Rourke
Tæplega þrjú þúsund íbúar þurfa að þola ágang fjögurra milljóna ferðamanna ár hvert í strandbænum Cinque Terre á Ítalíu. Við fylgjumst með sex einstaklingum og afdrifum þeirra eitt sumarið í grátbroslegri sögu af ferðamannaparadís sem er að kikna undan ferðamennsku sem drifin er áfram að síbylju samfélagsmiðla.





