Komdu og sjáðu heiminn með augum Anton Corbijn, meistarans sem á heiðurinn af myndheimi Depeche Mode, U2, Nirvana og fleiri listamanna. Margmiðla Meistaraspjall með Anton Corbijn felur í sér magnað tækifæri til að sjá listamanninn líta yfir ótrúlegan feril sinn gegnum ljósmyndir, tónlistarmyndbönd og kvikmyndir, um leið og hann veitir innsýn í listina að segja sögur með myndum.
Á þessum einstaka viðburði fara fram umræður samhliða sýningum á völdum stiklum og tónlistarmyndböndum. Ekki láta þetta óviðjafnanlega tækifæri fram hjá þér fara til að sjá og læra af einum áhrifamesta sjónlistarmanni samtímans.


