Búbblubíóið er einn af glæsilegustu viðburðum RIFF í ár, sett saman í samstarfi við Aztiq og Maison Wessman. Þetta er kvöld þar sem vín, vinir og kvikmyndir fléttast saman í einstaka upplifun, þar sem glamúr og góð stemning skapa hátíðlegt andrúmsloft. Sýnd verður hin sígilda kvikmynd Pal Joey frá árinu 1957, þar sem Frank Sinatra, Rita Hayworth og Kim Novak skína á skjánum.
Einn af heiðursgestum RIFF 2025, stórstjarnan Kim Novak, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF.
Gestir eru hvattir til að klæða sig upp í anda sýningarinnar, skála í búbblum og fagna töfrum kvikmyndarinnar á stóra tjaldinu. Snjólaug Lúðvíksdóttir stýrir kvöldinu og Sigríður Ásta, leik- og söngkona, brýtur upp sýninguna með lifandi tónlistarflutningi.
Innifalið í miðaverði er eitt glas af búbblum en þar að auki verða tilboð á barnum allt kvöldið.


