Á RIFF fögnum við kvikmyndagerðarfólki sem sem lætur sér ekki nægja að fljóta með straumnum heldur marka sína einstöku braut, varða hana með verkum sínum og vísa þannig veginn fyrir aðra að feta eftir. Í þessum flokki fögnum við þessum einstaklingum, sýnum verk þeirra og efnum til samtals.
Kim Novak er ein af goðsögnum gullaldar Hollywood, leikkona sem setti mark sitt á kvikmyndasöguna í verkum sem enn lifa góðu lífi á hvíta tjaldinu og munu gera það um. ókomna tíð. Hún fæddist í Chicago árið 1933 og steig sín fyrstu skref í Hollywood um miðjan sjötta áratuginn. Novak skaust þegar upp á stjörnuhimininn, ekki einvörðungu sem tákn fegurðar og dularfulls glæsileika, heldur sem listamaður sem bjó yfir einstöku næmi til að miðla brothættum kjarna sem bjó á bak við glamúrinn.
Ferill hennar spannar fjölmörg eftirminnileg hlutverk, en hún er ef til vill hvað oftast tengd við meistaraverk Alfred Hitchcock, Vertigo (1958). Þar skapaði hún eitt flóknasta og áhrifamesta kvenhlutverk kvikmyndasögunnar. Novak starfaði einnig með fleiri risum kvikmyndasögunnar á borð við Otto Preminger, Billy Wilder og Sidney Lumet, og sannaði með hverri frammistöðu fjölbreytta leikhæfileika og listrænan styrk.
Kim Novak er þó meira en kvikmyndastjarna. Hún er táknmynd tímabils þegar kvikmyndin var í senn stórbrotin list og ævintýralegur leikvöllur ímyndunaraflsins. Með verkum sínum hefur hún veitt kynslóðum áhorfenda innblástur og minnir okkur á að á bak við goðsögnina leynist ávallt kjarni mannlegra tilfinninga.
20 mínútna hlé verður á milli sýningu á Vertigo (1958) í sal 2 og Meistaraspjalls í gegnum hljóðfjartæknibúnað í sal 1 sem byrjar kl 17:30.
Einn af heiðursgestum RIFF 2025, stórstjarnan Kim Novak, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF. Í stað þess að koma í eigin persónu mun hún taka þátt í meistaraspjalli í beinni hljóðútsendingu um gervihnött.


