Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

Nú tekur að síga á seinni hluta sumars og brjálæðislega kósí bíóhaust bíður þín með ilmandi poppkorni, fallegum félagsskap og mögnuðum bíómyndum á uppskeruhátíð kvikmyndaáhugafólks.

Já, RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík nálgast óðfluga. Við hlökkum til að deila með ykkur fjölbreyttri dagskrá sem enginn má missa af.

Líkt og fyrri ár fleytum við rjómann af því sem vakið hefur mesta athygli á virtustu kvikmyndahátíðum heims og bjóðum ykkur að gleðjast með okkur á 11 daga hátíð í Háskólabíó dagana 25. september til 5. október 2025. 

RIFF sýnir fjölbreytt úrval kvikmynda frá öllum heimshornum, býður upp á einstaka innsýn í heim kvikmyndanna með bransaviðburðum á heimsmælikvarða, að sérviðburðum og veislum ógleymdum – tjútti og taumlausri gleði sem hátíðin er fyrir löngu orðin fræg fyrir.

Núna er tækifærið til að tryggja sér miða á lægsta mögulega verði. Eftir 15. ágúst hækkum við verðið og því viljum við endilega bjóða þér að grípa tækifærið!

Hér er sundurliðun á miðaverðum fyrir og eftir hækkun:

hatidarpassi scaled

Hátíðarpassi

NÚNA 23.580 kr. -> VERÐUR 25.500 kr
Þessi passi gefur eiganda þess aðgang að öllum sýningum að eigin vali!

Vinsamlegast athugið að hátíðarpassanum er ekki hægt að deila né nota á sérstaka viðburði nema annað sé tekið fram.

u20 1 scaled

Undir 20 Ungmennapassi

NÚNA 5.890 kr. -> VERÐUR 6.490 kr
U20 passinn er fullkominn kostur fyrir allt bíóáhugafólk undir 20 ára. Passinn inniheldur miða fyrir einn á 4 bíósýningar RIFF að eigin vali (sérviðburðir undanskildir), 30 mínútna inneign á rafskútum Hopp (takmarkað upplag) og RIFF merktan taupoka (takmarkað upplag).

u30 scaled

Undir 30 Ungmennapassi

NÚNA 8.490 kr. -> VERÐUR 9.390 kr
U30 passinn er fullkominn kostur fyrir allt bíóáhugafólk á aldrinum 20 til 30 ára. Passinn inniheldur 1 miða á 6 bíósýningar RIFF að eigin vali (sérviðburðir undanskildir), 30 mínútna inneign á rafskútum Hopp (takmarkað upplag), RIFF merktan taupoka (takmarkað upplag).

super8 scaled

Súper 8 Klippikort

NÚNA 13.790 kr. -> VERÐUR 15.190 kr
Súper 8 Klippikortið er tilvalinn kostur fyrir kvikmynda-, menningar- og hátíðarunnendur Klippikortið inniheldur 8 miða á lægra verði á hvaða kvikmyndasýningu sem er (sérviðburðir utanskildir). Korthafi getur boðið vinum eða fjölskyldu á eina sýningu, allt að 8 samtals, eða farið einn og notið 8 kvikmynda sjálfur.

Af hverju að mæta á RIFF 2025?

RIFF sérhæfir sig í sýningu sjálfstæðra og nýstárlegra verka kvikmyndagerðarfólks frá öllum heimshornum. Í ár erum við með framúrskarandi dagskrá sem inniheldur spennandi pallborðsumræður og heimsfræga gesti úr kvikmyndabransanum. Við getum ekki beðið eftir að segja ykkur frá því!