
Charter + Q&A
Háskólabíó
30. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Amanda Kernell
Sænsk-samíski leikstjórinn Amanda Kernell, sem RIFF 2026 heiðrar sem upprennandi meistara, tekur þátt í Spurt & svarað eftir sýninguna. Hún kemur á RIFF í kjölfar verðlauna í Toronto og San Sebastián.
Alice er fráskilin móðir tveggja barna, sem hefur ekki fengið að hitta þau í tvo mánuði á meðan beðið er forsjárdóms. Þegar sonur hennar hringir grátandi um miðja nótt tekur hún örvæntingarfulla ákvörðun: hún tekur börnin ólöglega með sér í leiguflugi til Kanaríeyja, í þeirri von að þau nái aftur tengslum og að hún geti snúið við stöðunni sér í hag.
Masterclass
Building Plattform: Erik Hemmendorff on Producing with Ruben Östlund
Háskólabíó
30. september, kl 19:20 (7:20pm)
Hvert er raunverulegt hlutverk framleiðandans þegar skapandi samstarf stendur árum saman og verkefnin verða sífellt umfangsmeiri? Erik Hemmendorff ræðir framleiðslu sem skapandi starfsgrein með hliðsjón af langvarandi samstarfi sínu við leikstjórann Ruben Östlund og þróun sífellt metnaðarfyllri alþjóðlegra kvikmyndaverkefna. Hann fjallar meðal annars um þróun hugmynda, hvernig framleiðandi ögrar sýn leikstjórans og verndar hana, fjármagnar áhættusöm verkefni, byggir upp alþjóðlegt samstarf, mótar leikaraval og framleiðslustefnu og viðheldur farsælu samstarfi við gerð afar ólíkra mynda. Í stað þess að beina sjónum eingöngu að verkum eins leikstjóra kannar meistaraspjallið hlutverk framleiðandans sem virks, skapandi samstarfsaðila, og þá möguleika sem langvarandi samstarf getur skapað.


Full Steam Ahead + Q&A
Háskólabíó
30. september, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjórar: Susan Muska, Greta Olafsdottir
Leikstjórar myndarinnar taka þátt í Spurt og svarað.
Myndin fjallar um konur af mismunandi kynslóðum sem starfa sem verkfræðingar og vísindamenn í jarðhitaiðnaðinum, baráttu þeirra fyrir kynjajafnrétti og stöðu þeirra í atvinnugrein þar sem karlar hafa lengi verið í ríkjandi meirihluta ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á liðnum árum.
Club Kid
Háskólabíó
30. september, kl 21:30 (9:30pm)
Leikstjóri: Jordan Firstman
Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska.


Queen at Sea
Háskólabíó
30. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Lance Hammer
Amanda og Martin, stjúpfaðir hennar, standa frammi fyrir siðferðislegri spurningu og eru ekki á eitt sátt um svarið. Móðir Amöndu, Leslie, þjáist að heilabilun og verður sífellt meira ósjálfbjarga. Á barn, maki eða dvalarheimili að taka af ákvarðanir fyrir sjúklinginn hér eftir? Eftir því stjúpfeðginin standa frammi fyrir sífellt erfiðari ákvörðunum missa þau jafnt og þétt tökin á afleiðingunum. Juliette Binoche fer með aðalhlutverkið.
Red Rocks
Háskólabíó
30. september, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjóri: Bruno Dumont
Á frönsku Rivíerunni etja tveir barnahópar kappi í hættulegum klettastökkum. Géo, sem er vart orðinn fimm ára, uppgötvar á einu sumri heim þar sem vinátta fléttast saman við samkeppni og fyrstu tilfinningar hjartans vakna í töfrandi landslagi Miðjarðarhafsins.


RIFF Talks
Háskólabíó
30. september, kl 17:00 (5:00pm)
Þessi röð samtalsviðburða dregur dám af TED-fyrirlestrum og byggir á stuttum kynningum á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og ungu skapandi einstaklingum. Hvert spjall felur í sér persónulega nálgun á kvikmyndagerð samtímans en ekki síður framtíðina. RIFF spjallið býður í senn upp á innsýn og innblástur bæði fyrir nemendur, listamenn á fyrstu skrefum ferilsins og reynslumeiri gesti.
I Only Rest in the Storm
Háskólabíó
30. september, kl. 19:00 (7:00pm)
Sérgio er kominn til stórborgar í Gíneu-Bissá til starfa fyrir hönd góðgerðarfélags við gatnagerð sem á að tengja eyðimerkur og skóga. Hann fær hins vegar mun flóknara verkefni upp í hendurnar þegar hann flækist inn í verulega flókið samband sem þau Diara og Gui eiga í.


Rehearsals for a Revolution
Háskólabíó
30. september, kl 21:15 (9:15pm)
Leikstjóri: Pegah Ahangarani
Í fimm portrettmyndum af ættingjum sínum og lærimeisturum rekur Pegah Ahangarani ævi sína og rúmlega fjörutíu ára sögu Írans. Með persónulegum ljósmyndasöfnum, heimamyndböndum, upptökum frá mótmælum, dagblöðum og hljóðupptökum fléttar hún saman persónulegar og sameiginlegar minningar, allt frá byltingunni 1979 til stríðsins 2026 og dregur þannig upp mynd af landi sem mótast hefur af kúgun og von um nýja byltingu.
Valin Besta heimildarmyndin á Cannes!
Gulleggið
Háskólabíó
30. september, kl. 21:40 (9:40pm)
Myndirnar sem keppa um Gulleggið eru eftir unga leikstjóra sem eru þátttakendur í kvikmyndasmiðjunni RIFF Talent Labs.


Christiania
Háskólabíó
30. september, kl 17:30 (5:30pm)
Leikstjóri: Karl Friis Forchhammer
Með áhrifamiklum og átakanlegum sögum sem spanna meira en 50 ár kannar CHRISTIANIA hvernig samfélag, sem byggt er á frelsi, samstöðu og andófi, heldur áfram að berjast fyrir rétti sínum til að vera til – á eigin forsendum.
Local Stories, Global Screens: Can Small Film Industries Break Through?
RÚV
30. september, kl 16:00 (4:00pm)
Streaming was supposed to make the world smaller, opening international audiences to films and series from less dominant languages and smaller production ecosystems. But has the playing field really become more equal? Taking Portugal and Iceland as starting points, this conversation looks at what helps local stories travel: language, financing, public broadcasters, platforms, cultural identity and the international image of a country. Portuguese producer and showrunner Edgar Medina, in conversation with Einar Logi Vignisson of RÚV, will explore whether international visibility depends on becoming more universally accessible or, paradoxically, on becoming even more specific, local and culturally distinctive. They will also ask what role public broadcasters play in sustaining local industries when global platforms remain difficult to access. The session will also include a screening of Edgar Medina’s short film Fallen.




